Vignir: Maður hálfvorkennir Norðmönnunum Henry Birgir Gunnarsson í Vrsac skrifar 18. janúar 2012 21:54 Vignir reyndist heldur betur drjúgur í kvöld. mynd/vilhelm
Vignir Svavarsson hefur komið sterkur inn í íslenska liðið á EM og hann skoraði ótrúlega dýrmætt mark úr hraðaupphlaupi undir lokin sem fór langleiðina með að tryggja íslenska liðinu sigur í leiknum gegn Noregi í kvöld. "Það kom aldrei annað til greina en að skora. Maður reynir alltaf að skora úr færunum," sagði Vignir sposkur. "Ég væri væntanlega ekki hér að ræða leikinn ef ég hefði ekki skorað. Það var ljúft að sjá boltann í netinu." Vignir var rétt eins og aðrir leikmenn landsliðsins enn að ná sér niður eftir lokamínútuna sem lengi verður í minnum höfð. "Eins og þetta var nú gaman þá hálfvorkennir maður Norðmönnunum. Við vorum að upplifa þessa tilfinningu sem þeir þurfa nú að ganga í gegnum fyrir tveimur dögum. Eins og það var súrt að tapa gegn Króötunum þá er eins ljúft að vinna núna," sagði Vignir en hvað var í gangi með varnarleikinn sem var alls ekki nógu góður. "Við vorum ekki að standa nógu þétt og ekki að gera það sem við töluðum um. Það vantaði líka meiri ákveðni. Það er yndislegt að vinna leik eftir að hafa ekki náð sínu besta fram. Það verður að viðurkennast."
Mest lesið Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Enski boltinn Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Enski boltinn Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Fótbolti Butler sagður vilja burt frá Miami sem fyrst Körfubolti Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Enski boltinn Látnir gista líka á æfingasvæðinu Enski boltinn Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Enski boltinn Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Enski boltinn Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Sjá meira