Nýtt upphaf án Ólafs Stefánssonar Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 29. desember 2012 08:00 Það er staðreynd að handknattleiksmaðurinn Ólafur Stefánsson hefur leikið sinn síðasta landsleik fyrir Ísland. Ólafur hefur verið lykilmaður í landsliðinu allt frá því hann lék á sínu fyrsta stórmóti, heimsmeistaramótinu sem fram fór á Íslandi árið 1995. Ólafur var fyrirliði landsliðsins sem lék til úrslita á Ólympíuleikunum í Peking og hann var einnig fyrirliði þegar liðið náði bronsverðlaunum á Evrópumeistaramótinu í Austurríki árið 2010. Skarðið sem Ólafur skilur eftir verður erfitt að fylla enda er Ólafur af mörgum talinn vera einn besti handboltamaður allra tíma. Það voru fleiri stórir vendipunktar hjá íslenska handboltalandsliðinu á árinu 2012. Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari liðsins, hætti störfum að loknum Ólympíuleikunum í London sl. sumar þar sem liðið var hársbreidd frá því að komast í undanúrslit. Silfurverðlaunin á ÓL í Peking árið 2008 og bronsverðlaunin á Evrópumeistaramótinu í Austurríki árið 2010 standa upp úr á farsælum þjálfaraferli Guðmundar með íslenska karlalandsliðið. Undir hans stjórn setti liðið ný viðmið og braut niður hindranir sem höfðu áður staðið í vegi. Aron Kristjánsson tók við af Guðmundi og þar kemur til sögunnar ungur þjálfari sem sækir reynslu sína og hugmyndafræði frá Danmörku. Aron lék um árabil með danska liðinu Skjern þar sem Anders Dahl-Nielsen var þjálfari. Nýtt upphaf bíður því íslenska handboltalandsliðsins á næsta stórmóti þegar heimsmeistaramótið hefst á Spáni 11. janúar á næsta ári. Nýr þjálfari og Ólafur Stefánsson ekki til staðar. Kvennalandsliðið í handknattleik komst „bakdyramegin" inn í úrslitakeppni Evrópumeistaramótsins sem fram fór í Serbíu í desember á þessu ári. Ísland náði ekki að landa sigri á EM, líkt og á Evrópumeistaramótinu í Danmörku árið 2010. Kjarni liðsins er ungur og liðið á framtíðina fyrir sér og er líklegt til þess að halda uppi merkjum Íslands á stórmótum í framtíðinni.Ótrúleg sigurganga hjá Kiel Handknattleiksþjálfarinn Alfreð Gíslason náði ótrúlegum árangri með þýska liðið Kiel á árinu 2012. Undir hans stjórn vann Kiel alla 34 leiki sína í deildarkeppninni sem er einsdæmi í sögu þýsku deildarkeppninnar. Kiel varð einnig bikarmeistari og fór þar ósigrað í gegnum tímabilið. Loks hampaði liðið Evrópumeistaratitlinum í lok maí með 26-21 sigri gegn spænska liðinu Atleticó Madríd. Þetta var í þriðja sinn sem Alfreð nær þessum titli sem þjálfari, í annað sinn hjá Kiel en Magdeburg varð Evrópumeistari undir hans stjórn árið 2002. Árangur Alfreðs með lið Kiel á leiktíðinni 2011-2012 verður seint leikinn eftir og í þessu liði lék landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson stórt hlutverk. Íslenskir handboltaþjálfarar hafa sett mark sitt á þýska handboltann á undanförnum misserum og þar fara Alfreð, Guðmundur Þ. Guðmundsson og Dagur Sigurðarson fremstir í flokki. Það er tekið eftir árangri þeirra og ekki síst í ljósi þeirrar staðreyndar að þeir koma allir frá „litla" Íslandi. Íslenskir þjálfarar eru vel að sér í faginu og hafa náð tökum á viðfangsefninu með mikilli þekkingu, reynslu, elju og vinnusemi. Ekki má gleyma árangri norska kvennalandsliðsins í þessu samhengi undir stjórn Þóris Hergeirssonar. Liðið fékk silfurverðlaun á Evrópumeistaramótinu sem lauk í desember eftir að hafa unnið Ólympíumeistaratitilinn í London í sumar.Markamet og nýtt afl Lars Lagerbäck, þjálfari A-landsliðs Íslands í knattspyrnu, er með stórskemmtilegt lið í höndunum sem gæti á næstu árum skrifað nýja kafla í knattspyrnusögu Íslands. Það eru bundnar miklar vonir við Lagerbäck og að honum takist með reynslu sinni og þekkingu að koma liðinu á hærri stall. Kjarni íslenska A-landsliðsins er fyrsta kynslóð leikmanna sem hefur alist upp við betri æfingaaðstöðu en aðrar kynslóðir áttu kost á. Og fyrr eða síðar mun Ísland ná alla leið í úrslit á stórmóti. Til þess þarf Ísland að eiga sex til sjö leikmenn sem ná á sama tíma á þann stall sem Eiður Smári Guðjohnsen náði á sínum tíma sem leikmaður Chelsea og Barcelona. Einn af vendipunktum ársins 2012 er sú staðreynd að fjölmargir landsliðsmenn voru „sjóðheitir" með liðum sínum víðs vegar um Evrópu. Alfreð Finnbogason hjá hollenska liðinu Heereven fór þar fremstur í flokki og skoraði 34 mörk í 48 leikjum, þar af 32 mörk í 42 leikjum fyrir félagslið. Þar með bætti hann 33 ára gamalt markamet Péturs Péturssonar sem skoraði 32 mörk í 45 leikjum árið 1979. Hér á Íslandi náði Tryggvi Guðmundsson að skrifa nýjan kafla í knattspyrnusöguna. Tryggvi bætti markamet sem Ingi Björn Albertsson hafði átt frá árinu 1987 þegar hann skorað sitt 126. mark í efstu deild. Tryggvi bætti markametið í 3-1 sigri ÍBV á Hásteinsvelli með skoti beint úr aukaspyrnu og þar með hafði hann skorað sitt 127. mark í efstu deild á ferlinum. Alls hefur Tryggvi skorað 129 mörk í efstu deild á Íslandi. Met Tryggva er merkilegt fyrir þær sakir að hann lék í sjö ár sem atvinnumaður í Skandinavíu á hápunkti ferilsins. Kvennalið Þórs/KA náði að breyta valdajafnvæginu í íslenskum kvennafótbolta á síðasta tímabili. Akureyrarliðið landaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í efstu deild í kvennaflokki. Stjarnan úr Garðabæ hafði árið áður rofið margra ára sigurgöngu Vals sem hafði fagnað þessum titli í sex skipti á sjö ára tímabili. Meistaratitill Þórs/KA er að mínu mati einn af stóru vendipunktum íþróttaársins 2012 og ljóst að bætt æfingaaðstaða liða á landsbyggðinni skilar árangri. Kvennalandsliðið í fótbolta náði þeim frábæra árangri að tryggja sér keppnisrétt í úrslitakeppni Evrópumeistaramótsins sem fram fer í Svíþjóð næsta sumar. Þetta er í annað sinn sem Ísland er á meðal þeirra þjóða sem leika í lokakeppni EM en ísinn var brotinn árið 2009 þegar Ísland komst í fyrsta sinn á EM. Árangur Íslands hefur vakið athygli og liðið hefur skipað sér í fremstu röð í Evrópu þar sem liðið er í 15. sæti á FIFA-stigalistanum.Auðunn sterkur á HM Kraftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson náði frábærum árangri á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Suður-Ameríku í nóvember. Hann setti heimsmet í réttstöðulyftu þegar hann lyfti 361,5 kg. Auðunn, sem keppir fyrir Breiðablik, endaði í áttunda sæti í heildarkeppninni. Haraldur Franklín Magnús, afrekskylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, náði eftirtektarverðum árangri á árinu 2012. Haraldur Franklín sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fór á Leirdalsvelli hjá GKG og hann bætti um betur þegar hann fagnaði sigri á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór á Hellu. Þar með lauk 27 ára bið GR eftir Íslandsmeistara í höggleik í karlaflokki en Sigurður Pétursson landaði þeim titli síðast fyrir GR árið 1985. Evrópumeistaratitill kvennalandsliðsins í hópfimleikum var einn af hápunktum íþróttaársins. Og það er ljóst að Ísland skipar sér í fremstu röð í ört vaxandi íþróttagrein. Hópfimleikar eru að verða fjölmennasta íþróttagreinin sem stunduð er af konum hér á landi – og framtíðin er björt þar á bæ. Að lokum vil ég minnast á þá staðreynd að Körfuknattleikssamband Íslands sendi A-landslið í karla- og kvennaflokki til keppni á ný eftir tveggja ára hlé. Á sínum tíma tók KKÍ þá ákvörðun að senda ekki A-landsliðin til keppni vegna fjárskorts. Það er umhugsunarefni að þátttaka landsliða sé undir því komið að forsvarsmenn sérsambands nái að landa stórum styrktarsamningum við einkafyrirtæki. Fjárhagslegur stuðningur frá hinu opinbera við íslenskt afreksfólk í íþróttum hefur lítið breyst þrátt fyrir að skref hafi verið tekin í rétta átt. Á því sviði er enn verk að vinna og kannski verður árið 2013 lykilár í því samhengi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun Mest lesið Fellur helsti stuðningsmaður menningarmála af þingi? Magnús Logi Kristinsson Skoðun „Við andlát manns lýkur skattskyldu hans“ Þórður Gunnarsson Skoðun Nýtanleg verðmætasköpun um allt land Jóhann Frímann Arinbjarnarson Skoðun Sjálfstæðismenn boða víst skattalækkanir á þá efnamestu Haukur V. Alfreðsson Skoðun Viltu borga 200 þús á mánuði eða 600 þús á mánuði af íbúðinni? Hildur Þórðardóttir Skoðun Dýrkeyptur aðgangur Stella Guðmundsdóttir Skoðun Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon Skoðun ESB kærir sig ekkert um Ísland í jólagjöf Ole Anton Bieltvedt Skoðun Íslenskufræðingurinn Sigmundur Davíð Hákon Darri Egilsson Skoðun Óstjórn í húsnæðismálum Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun Skoðun Skoðun Nýtanleg verðmætasköpun um allt land Jóhann Frímann Arinbjarnarson skrifar Skoðun Geðrænn vandi barna og ungmenna Eldur S. Kristinsson skrifar Skoðun Það er kominn verðmiði á fangelsið en hvað má ungmenni í alvarlegum vanda kosta? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Hinn opni tékki samgöngusáttmálans – ljósastýring og Sundabraut Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Eru sumir heppnari en aðrir? Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kallað eftir fyrirsjáanleika í opinberum framkvæmdum Þorsteinn Víglundsson ,Jónína Guðmundsdóttir,Karl Andreassen skrifar Skoðun Sjálfstætt fólk Kristín Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Óstjórn í húsnæðismálum Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Arfur stjórnmálanna 2024 Elvar Eyvindsson skrifar Skoðun Kjósum rétt(indi) fyrir fatlað fólk! Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Frelsi er allra, ekki fárra útvaldra Jón Óskar Sólnes skrifar Skoðun Menntun og tækifæri: Hvað veljum við fyrir Ísland? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Eyðimerkurganga kosningabaráttunnar? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Krónan eða evran? Kostir og gallar Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Kjóstu meiri árangur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvaða hlekkur ert þú í keðjunni? Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Laxeldið verður ekki stöðvað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Þroskamerki þjóðar Tómas Torfason skrifar Skoðun Afvegaleidd umræða um áskoranir heilbrigðiskerfisins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Var stytting náms til stúdentsprófs í þágu ungmenna? Sigurður E. Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem ekki má fjalla um fyrir kosningar til Alþingis Árni Jensson skrifar Skoðun Launafólk sýndi ábyrgð – Hvað með bankana og fjármagnseigendur? Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Sjálfstæðar konur? Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Fullveldinu er fórnað með aðild að Evrópusambandinu Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Endurhugsum dæmið, endurnýtum textíl Guðbjörg Rut Pálmadóttir skrifar Skoðun Betri Strætó 2025 og (svo) Borgarlína Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Um kosningar, gulrætur og verðbólgu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon skrifar Skoðun Fellur helsti stuðningsmaður menningarmála af þingi? Magnús Logi Kristinsson skrifar Sjá meira
Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon Skoðun
Skoðun Það er kominn verðmiði á fangelsið en hvað má ungmenni í alvarlegum vanda kosta? Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Hinn opni tékki samgöngusáttmálans – ljósastýring og Sundabraut Eiríkur S. Svavarsson skrifar
Skoðun Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Kallað eftir fyrirsjáanleika í opinberum framkvæmdum Þorsteinn Víglundsson ,Jónína Guðmundsdóttir,Karl Andreassen skrifar
Skoðun Afvegaleidd umræða um áskoranir heilbrigðiskerfisins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Launafólk sýndi ábyrgð – Hvað með bankana og fjármagnseigendur? Finnbjörn A. Hermannsson skrifar
Skoðun Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon skrifar
Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon Skoðun