Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á sjálf Íslandsmetið í málþófi á Alþingi, með langlengstu ræðu sem þar hefur verið flutt frá því rafrænar mælingar hófust á ræðutíma þingmanna.
Forystumenn stjórnarflokkanna hafa síðustu daga sakað stjórnarandstæðinga um málþóf, síðast Jóhanna í ræðu í gær þar sem hún vildi meina að þingstörfin gengju betur „..ef það er ekki hérna eilíft málþóf upp í öllum málum", sagði hún.
Og hér er talað af reynslu, miðað við lista Alþingis yfir lengstu ræður, en listinn nær þó aðeins aftur til ársins 1991, þegar tölvuskráning ræðutíma hófst. Í þremur efstu sætum eru:
Svanfríður Jónasdóttir er í þriðja sæti, um sveitarstjórnarlög. Tíminn 5 klukkustundir og 39 mínútur.
Í öðru sæti er Ögmundur Jónasson, um Ríkisútvarpið. Tíminn 6 klst 1 mín og 54 sek.
Ögmundur hefði þurft að þrauka fjórum klukkustundum lengur, og nokkrum mínútum betur, til að slá met Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hún setti árið 1998 , í ræðu um húsnæðismál, en tími hennar mældist 10 klst 8 mín og 33 sek, og hefur met hennar nú staðið óhaggað í 14 ár.
Athygli vekur að þau sem skipa tvö efstu sætin eru bæði ráðherrar í núverandi ríkisstjórn og allir á listanum eru úr núverandi stjórnarflokkum.
Hér er listi Alþingis yfir 12 lengstu þingræður frá 1991:
1. Jóhanna Sigurðardóttir, Samfylkingu, 1998. Húsnæðismál. Ræðutími 10:08:33
2. Ögmundur Jónasson, Vinstri grænum, 2006. Ríkisútvarpið hf. Ræðutími 6:01:54
3. Svanfríður Jónasdóttir, Samfylkingu, 1998. Sveitarstjórnarlög. Ræðutími 5:39:39
4. Valdimar L. Friðriksson, Samfylkingu, 2007. Ríkisútvarpið ohf. Ræðutími 5:13:01
5. Jón Bjarnason, Vinstri grænum, 2006. Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu. Ræðutími 4:52:01
6. Hjörleifur Guttormsson, Vinstri grænum 1998. Gagnagrunnur á heilbrigðissviði. Ræðutími 4:49:07
7. Hjörleifur Guttormsson, Vinstri grænum 1995. Náttúruvernd. Ræðutími 4:47:21
8. Valdimar L. Friðriksson, Samfylkingu, 2006. Vatnalög. Ræðutími 4:44:20
9. Jóhanna Sigurðardóttir Samfylkingu, 1998. Sveitarstjórnarlög. Ræðutími 4:21:07.
10. Rannveig Guðmundsdóttir, Samfylkingu 1998. Sveitarstjórnarlög. Ræðutími 3:51:55
11. Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstri grænum 2002. Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsá í Fljótsdal. Ræðutími 3:48.29
12. Mörður Árnason, Samfylkingu, 2006. Vatnalög. Ræðutími 3:46:11.
