Innlent

Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn

mynd/samsett Vísir.is
Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir eru næstum jöfn samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR sem kannaði stuðning almennings við forsetaframbjóðendur á tímabilinu 10. til 15. maí. Þannig hefur Þóra misst töluvert forskot sem hún hafði á Ólaf Ragnar samkvæmt fyrri skoðanakönnunum, sem sýndu allt að 10 prósentu mun á milli Þóru og Ólafs Ragnars.

Þóra hefur enn örlítið forskot á sitjandi forseta, en hún mælist samkvæmt þessari könnun 43, 4%. Nú vilja 41,3% kjósa Ólaf Ragnar. Munurinn er innan vikmarka. Alls tóku 78,2% afstöðu.

Aðrir frambjóðendur mælast með töluvert minna fylgi. Ari Trausti Guðmundsson mælist með 8,9% prósentu fylgi. Andrea J. Ólafsdóttir kemur næst á eftir með 2,6% og næst á eftir henni kemur Herdís Þorgeirsdóttir með 1,3%.

Aðrir frambjóðendur eru með eitt prósent eða minna. Jón Lárusson, sem mældist með eitt prósent, hefur dregið framboð sitt til baka þar sem honum tókst ekki að safna undirskriftum fyrir framboð sitt.

Töluverður munur reyndist á afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokka það sagðist styðja (væri gengið til kosninga nú).

Þannig voru 52,4% framsóknarmanna og 62,2% sjálfstæðismanna sem sögðust kjósa Ólaf Ragnar en 72,7% samfylkingarfólks og 62,6% Vinstri-grænna sagðist vilja kjósa Þóru.

Þá voru 66,7% þeirra sem sögðust styðja ríkisstjórnina sem jafnframt sögðust kjósa Þóru. Á móti voru 53,9% þeirra sem sögðust andvígir ríkisstjórninni sem sögðust vilja kjósa Ólaf Ragnar.

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR

Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR

Svarfjöldi: 972 einstaklingar

Dagsetning framkvæmdar: 10.-15. maí 2012.

Hægt er að skoða könnunina hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×