Vinkonan í ESB
Þó að það sé styttra síðan vinkonan fjárfesti í sinni íbúð þá hafa mánaðargreiðslur hennar lækkað og eignarhlutur hennar hækkað, ekki mikið, en hún eignast allavega hlut í íbúðinni sinni. Staðan er hins vegar önnur hjá mér. Lánið hefur gert lítið annað en að hækka, en það hefur hækkað um tæpar sjö milljónir á sex árum og eignarhlutur minn er stjarnfræðilega lítill, ef hann er nokkur. Svo ofan á allt þetta, þá borgar vinkonan minna í mat og getur keypt sér meira af fötum heldur en ég!
En eina af aðalástæðunum fyrir því að húsnæðislán mitt hefur hækkað það mikið að lánið er núna hærra en verðmæti eignarinnar, er hægt að rekja til blessaðrar verðtryggingarinnar. Ég veit ekki með ykkur, en persónulega er ég alveg til í að kveðja verðtrygginguna fyrir fullt og allt og það mun gerast með upptöku evrunnar. Verðtrygging lána er nánast óþekkt fyrirbæri í Evrópu enda talin óþörf. Öðrum þjóðum hefur tekist það sem Íslendingar hafa þráð frá því að seðlar byrjuðu að skipta máli, en það er að búa til sanngjarnt lánakerfi sem býr ekki við sveiflur og hækkanir lána.
Fyrir nokkrum árum kom út skýrsla á vegum Neytendasamtakanna og í henni var farið yfir muninn á húsnæðislánum hér á landi og svo í tíu öðrum Evrópuríkjum. Í þessari skýrslu kom fram að það er mun hagstæðara að taka lán í öðrum ríkjum þar sem vextir hér á landi eru allt að sjö prósentum hærri, sem þýðir að meðalfjölskyldan er að greiða mörg hundruð þúsund krónur í vexti á hverju ári. Það er endalaust hægt að tala um sértækt úrræði fyrir heimilin en ég vil lausnir til frambúðar, ég vil geta keypt mér eign og borgað af mínum lánum við hver mánaðamót án þess að lánin hækki um nokkra tugi þúsundkalla mánaðarlega.
Með upptöku evrunnar munum við sjá eignarhlut okkar stækka í takt við það sem greitt er af húsnæðislánum. Við munum geta haldið frábær matarboð í íbúðinni sem við eigum eitthvað í og skálað í ódýrara áfengi í fínu, nýju fötunum okkar. Já, eða svona nokkurn veginn.
Skoðun
Opið bréf til Íslandspósts ohf.
Gróa Jóhannsdóttir skrifar
Gaza getur ekki beðið lengur
Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar
Ísland yrði betra með aðild að Evrópusambandinu
Jón Frímann Jónsson skrifar
SVEIT – Kastið inn handklæðinu
Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar
Skjáfíkn - vísindi eða trú?
Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Evrópusambandið eða nasismi
Snorri Másson skrifar
Friður eða svikalogn? Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor, svarað
Andri Þorvarðarson skrifar
Hlýnun jarðar mun ekki valda heimsendi
Sæunn Kjartansdóttir skrifar
Listin að styðja en ekki stýra
Árni Sigurðsson skrifar
Með vægi í samræmi við það
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Hugvíkkandi efni: Forvitni umfram dómhörku
Bergsveinn Ólafsson skrifar
Velferðartækni er það lykillinn að sjálfbærara heilbrigðiskerfi?
Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Hindrum fleiri græn gímöld með einföldun regluverks
Ásta Logadóttir,Trausti Björgvinsson skrifar
Vegna FB færslu Kristins Hrafnssonar: Misskilningur um endurgreiðslukerfi kvikmynda
Ólafur William Hand skrifar
Hvernig tölum við um mat í kringum börnin okkar?
Berglind Lilja Guðlaugsdóttir skrifar
Fangelsismál - Sparnaður og endurhæfing
Ólafur Ágúst Hraundal skrifar
Syndaaflausnin er svo að við ætlum að læra af þessu „á ykkar kostnað“
Davíð Bergmann skrifar
Tvær þjóðir í sama landi
Einar Helgason skrifar
Henta vísindin bara þegar þau styðja skoðanir okkar?
Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Hlutverk markmiða er að umbreyta okkur
Árni Sigurðsson skrifar
Líknarslæving við lífslok er umdeild meðferð
Ingrid Kuhlman skrifar
Óáreiðanlegar mælingar og misvísandi fréttir
Sigurjón Arnórsson skrifar
Unga fólkið okkar og samfélagsmiðlar
Fjóla Einarsdóttir skrifar
Hvað segir Morgunblaðið nú um stöðu litlu ríkjanna í ESB?
Ole Anton Bieltvedt skrifar
Það er ekki eitt, það er allt
Diljá Matthíasardóttir skrifar
Skilyrt loforð
Þorsteinn Sæmundsson skrifar
Tímamótin að verða alvöru faðir
Matthildur Björnsdóttir skrifar
Stöndum vörð um menntun og styðjum við kennara
Kolbrún Þ. Pálsdóttir,Kristín Jónsdóttir,Gunnar Ásgrímsson skrifar
Fjölmiðlanefnd í stað Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Umboðsmaður barna í 30 ár
Salvör Nordal skrifar