Körfubolti

Finn sigur hjá Pavel og félögum

Pavel í leik með KR.
Pavel í leik með KR.
Pavel Ermolinskij og félagar í Norrköping Dolphins unnu kærkominn útisigur á KFUM Nässjö, 71-76, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Höfrungarnir voru undir lengi vel en frábær lokaleikhluti skilaði þeim stigunum tveimur.

Pavel átti fínan leik. Skoraði 9 stig, tók 4 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.

Þetta var annar sigur Höfrunganna í fimm leikjum en liðið hefur ekki farið sérstaklega af stað í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×