Íslenski boltinn

Fanndís og Rakel á skotskónum - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel
Fanndís Friðriksdóttir fór fyrir sínu liði í 7-1 stórsigri á Selfossi í kvöld og varð sú fyrsta til að skora þrennu í Pepsi-deild kvenna á þessu tímabili. Fanndís og Rakel Hönnudóttir sem skoraði tvö mörk eru nú markahæstu leikmenn deildarinnar með fjögur mörk hvor.

Fanndís skoraði öll þrjú mörkin sín í fyrri hálfeiknum en þessi stórsigur skilaði Blikakonum upp í efsta sæti deildarinnar. Rakel skoraði tvö mörk og hefur þar með skorað í fyrstu þremur heimaleikjum sínum í Breiðabliksbúningnum.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik Breiðabliks og Selfoss á Kópavogsvellinum í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×