Lífið

Tíu þúsund "læk"

Björgvin Sigurðsson
Björgvin Sigurðsson
Í tilefni þess að tíu þúsund „læk" eru komin á Facebook-síðu Skálmaldar hefur hún ákveðið að gefa dyggum aðdáendum sínum ýmsan varning sem tengist sveitinni. Stuttermabolir, geisladiskar og vínylplötur eru þar á meðal.

Nýjasta plata Björgvins Sigurðssonar og félaga, Börn Loka, hefur fengið mjög góða dóma á erlendum þungarokkssíðum. Bandarísku síðurnar Shreddernet.com og Metal-Exposure.com gefa henni 8,5 af 10 í einkunn og sömu einkunn fær hún á frönsku síðunni Metalchroniques.fr. Hér heima hefur platan fengið fínar viðtökur og situr í öðru sæti Tónlistans.

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.