Daginn lengt um eina og hálfa klukkustund 24. janúar 2012 12:28 Frá Þingvöllum. 24. janúar er sá dagur þar sem mestar líkur eru á meira en 15 stiga frosti á Íslandi.
Skammdegið víkur nú hratt og hefur daginn lengt um meira en eina og hálfa klukkustund frá því dagur var stystur þann 22. desember. Þá telst 24. janúar vera sá dagur þar sem mestar líkur eru á meira en 15 stiga frosti á Íslandi. Landsmenn finna nú óðum fyrir því, bæði þegar þeir halda til vinnu á morgnana, og enn frekar þegar heim er haldið síðdegis, hvernig daginn er að lengja. Tölurnar úr Almanaki Háskólans sýna okkur að miðað við vetrarsólstöður 22. desember birtir nú hálftíma fyrr á morgnana og síðdegis helst birtan nú klukkustund lengur. Þannig var myrkur í Reykjavík klukkan 16.49 þegar dagur var stystur en í dag telst komið myrkur klukkan 17.49, eða nákvæmlega klukkustund síðar. Og upp úr þessu fer daginn að lengja hraðar eða um fjórar til sex mínútur á dag og þann 1. febrúar verða 40 mínútur búnar að bætast við birtutímann á dag til viðbótar. Sólin er einnig að hækka á lofti. Þannig var sólarhæð í Reykjavík aðeins 2,7 gráður yfir sjóndeildarhring þann 22. desember en í dag mun sólin ná upp í 6,5 gráður yfir sjóndeildarhring í Reykjavík klukkan 13.40. Sólin verður svo komin upp í 15 gráður þann 20. febrúar og þá fer hún að bræða snjó að ráði. Hækkandi sól fylgja meiri hlýindi og þannig var meðalhiti febrúarmánaðar nærri einni gráðu hærri en í janúar í Reykjavík á tímabilinu frá 1960 til 1990. Og dagurinn í dag, 24. janúar, er sá dagur á Íslandi þar sem mestar líkur eru á meira en 15 stiga frosti einhverstaðar á landinu, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings. Þetta þýðir þó ekki að hægt sé að líta á þennan dag sem kaldasta dag ársins og að upp úr þessu fari að hlýna. En hver skyldi þá vera kaldasti dagur ársins að meðaltali á Íslandi? Við þeirri spurningu fæst ekki einfalt svar, segir Trausti. Ef litið er á meðaltal áranna 1960 til 2011 í Reykjavík er aðfangadagur 24. desember kaldasti dagur ársins. Ef tímabilið 1846 til 2011 í Stykkishólmi er hins vegar skoðað er 25. febrúar kaldasti dagur ársins. Hafísár viðhalda kulda fram eftir vetri og telur Trausti köld hafísár geta skýrt kaldasta daginn svo seint í febrúar á lengra tímabilinu. Hann segir íslenska veturinn flatan og hitinn sé í lágmarki allt frá 20. desember til 10. mars og dæmi séu um að kaldasti dagur ársins sé í apríl. Ef til væri 1.000 ára meðaltalsmæling myndi Trausti giska á að kaldasti dagurinn á Íslandi væri á tímabilinu frá 25. janúar til 10. febrúar. Kannski er best að hugga sig við, meðan við þreyjum þorrann, að brátt fer að hilla undir vorið, því nú eru innan við þrír mánuðir í sumardaginn fyrsta, sem í ár verður þann 19. apríl.
Mest lesið Best að sleppa áfenginu alveg Innlent „Hann var mjög heppinn, hann hefði getað dáið“ Innlent Búðarhnupl aukist um sjötíu prósent Innlent Starfsmenn sendiráðsins í Moskvu hafi verið áreittir Innlent Fjársöfnunin á borð lögreglu í enn eitt skiptið Innlent Ingibjörg æf vegna bókunar meirihlutans í borginni Innlent Svara fyrir hylmingu í einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssögunnar Innlent Lögregla lýsir eftir manni Innlent Mál Breiðholtsskóla á borði menntamálaráðherra Innlent Reyndu að þvinga mann til að taka úr hraðbanka Innlent Fleiri fréttir „Hann var mjög heppinn, hann hefði getað dáið“ Búðarhnupl aukist um sjötíu prósent Starfsmenn sendiráðsins í Moskvu hafi verið áreittir Um tíu milljónir söfnuðust fyrir íbúa Gasa Best að sleppa áfenginu alveg Síðasti rampurinn vígður við Háskóla Íslands í dag Kennir dýrum að vera róleg í sínu eigin umhverfi Mál Breiðholtsskóla á borði menntamálaráðherra Segir fangageymslur ekki viðeigandi vistunarstað fyrir börn Stóraukið búðarhnupl, fjölgun í haldi og aldamótagoð í beinni Einn slasaðist þegar öryggi fór af hjá Norðuráli Reyndu að þvinga mann til að taka úr hraðbanka Fimmti úrskurðaður í varðhald Fagnar að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði byrlunarmálið Egill Heiðar ráðinn Borgarleikhússtjóri Ingibjörg æf vegna bókunar meirihlutans í borginni Vísa ummælum á bug og telja upp aðgerðir Fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim fjórða Byggðajöfnunarmál að fækka sýslumönnum Lax slapp úr sjókví fyrir austan Segir samningsviljann hjá leikfélaginu engan „Geri ráð fyrir að þetta séu ummæli sem féllu í hita leiksins“ Býður út næstsíðasta áfanga vegagerðar í Gufudalssveit Fjársöfnunin á borð lögreglu í enn eitt skiptið Dregur ummælin til baka og biðst afsökunar Hafi gert ýmislegt til að bæta stöðuna í Breiðholti Byrlunarmálið og ofbeldi í Breiðholti Segir ummæli Ásthildar Lóu ekki samræmast stöðu hennar Almennt á móti rekstri spilakassa en tryggja þurfi fjármögnun Vilja vita hvort Jón Gunnarsson hafi brotið siðareglur þingmanna Sjá meira