Tónlist

Sveitamenn spila Brimbrettatónlist

Ásmundur Svavar, Jakob Grétar og Helgi Eyleifur skipa hljómsveitina Brimsteina.
Ásmundur Svavar, Jakob Grétar og Helgi Eyleifur skipa hljómsveitina Brimsteina.
„Helsti draumurinn er að gefa út sjötommu, eða tveggja laga plötu. Það er útgáfuformið fyrir þessa tónlist,“ segir Ásmundur Svavar Sigurðsson í borgfirsku hljómsveitinni Brimsteinar.

Með Ásmundi Svavari í sveitinni er bróðir hans Jakob Grétar en þeir eru frá Varmalæk og spila einnig með progg-sveitinni Eldberg sem gaf út sína fyrstu plötu í fyrra. Þriðji meðlimurinn er Helgi Eyleifur Þorvaldsson frá Brekkukoti.

Brimsteinar spila svokallaða brim-tónlist og helstu áhrifavaldar eru The Ventures, Dick Dale og The Shadows. Fáar íslenskar brim-sveitir hafa starfað hér hin síðari ár. Helst má nefna hljómsveitina Brim með Curveri Thoroddsen.

Brimsteinar tóku upp tvö ný myndbönd fyrir skömmu á sólarströndinni Langasandi á Akranesi og skelltu þeim á síðuna Youtube. Bæði lögin eru eftir belgíska tónlistarmanninn Django Reinhardt. Útlitið á strákunum er undir áhrifum frá sjöunda áratugnum þegar brim-tónlist naut mikilla vinsælda. En hvaðan koma þessir flottu búningar? „Ég vil þakka Gísla Árnasyni, formanni Karlakórsins Heimis fyrir þá. Hann lánaði okkur þessa jakka,“ segir Ásmundur Svavar, sem skemmtir sér vel með Brimsteinum. „Þetta er gífurlega gaman og mikill léttleiki sem fylgir þessu.“ -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.