Aðbúnaði á geðdeildum Landspítalans (LSH) á Hringbraut er um margt ábótavant, að sögn framkvæmdastjóra geðsviðs spítalans. Fjórar legudeildir eru í húsinu; ein fíknideild og þrjár blandaðar móttökugeðdeildir, og litlir sem engir möguleikar til aðgreiningar eru fyrir hendi eftir veikindastigum fólks.
Helsta vandamálið í bráðaþjónustunni er skortur á úrræðum fyrir veikustu einstaklingana og einnig hitt; að misveikir sjúklingar eru hafðir saman á deildum.
Markar oft upphaf sjúkrasöguBráðaþætti geðþjónustu LSH fyrir fullorðna er sinnt í geðdeildarhúsinu við Hringbraut. Þangað koma hinir bráðveiku og sjúkrasaga flestra þeirra Íslendinga sem veikjast af geðsjúkdómi hefst í þeirri byggingu. Göngudeildarþjónustu og annarri meðferð er einnig sinnt í húsnæðinu.
"Hér er margt sem getur betur farið, við erum ekki að draga fjöður yfir það," segir Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs. "Það má ýmislegt segja um hann, bæði gott og slæmt, en aðbúnaðurinn hér er ekki eins góður og við viljum, það er heila málið."
Aldraðir og árásargjarnir samanSem stendur er fólki með afar ólíkar þarfir sinnt á sömu stöðum á deildunum. Páll segir nauðsynlegt að breyta því, vegna allra þeirra sem í hlut eiga.
"Það er jafnvel verið að sinna fólki sem veit varla hvar það er statt í sömu herbergjum og fólk, sem er langt komið í bataferli, er að fá heimsóknir. Með því er í raun verið að ráðast inn í einkalíf mun veikara fólks," segir hann. Þá sé öldruðu fólki og mæðrum með lítil börn sinnt í sama rými og mjög órólegum og jafnvel árásargjörnum einstaklingum. Það sé því veigamikið öryggisatriði að skilja það fólk að.
"Það getur skapað mikið vandamál að blanda sjúklingum með ólíkar hjúkrunarþarfir saman eins og gert er á Hringbraut. Þetta verður oftar en ekki til þess að athygli starfsfólks fer að mestu leyti í einn eða tvo veikustu sjúklingana," segir Páll, en sjúklingar hafa oft kvartað yfir skorti á athygli og því að hafa lítið sem ekkert við að vera. Reynt hafi verið að koma til móts við það eins og hægt sé.
Geðgjörgæsla brýnt úrræði

Því hefur staðið til í nokkurn tíma að setja á laggirnar svokallaða geðgjörgæsludeild og eiga framkvæmdir að hefjast á næstu mánuðum, ef allt gengur að óskum. Einni af móttökudeildunum verður þá breytt til að veita allra veikasta fólkinu þjónustu.
Þurfa að biðla til almennings
Verkefnið er ekki hugsað í sparnaðarskyni heldur til að bæta aðbúnað sjúklinga og starfsmanna. Áætlað er að framkvæmdirnar muni kosta um 120 milljónir króna og deildinni verður að loka í tvo til þrjá mánuði á meðan á þeim stendur. Ekki hefur verið lögð fram formleg beiðni um fjármögnun til stjórnvalda vegna breytinganna og Páll veit ekki hvort það verður gert.
"Við þurfum auðvitað fjármagn í þessar aðkallandi breytingar og erum að klóra okkur í höfðinu yfir því," segir Páll. "Fjármögnunin mun ganga erfiðlega og eflaust þurfum við að biðla til almennings að hluta."
Ólíkar þarfir skapa vandamál

Páll segir allt verða gert til að auka öryggi og tryggja þjónustu svo fólki batni sem fyrst og komist á aðrar deildir. Hinar móttökugeðdeildirnar muni einnig njóta góðs af breytingunum.
Enn ólað niður á NorðurlöndunumForsvarsmenn geðsviðs LSH fengu til sín sérfræðinga frá Bretlandi til að taka deildina út og leggja til breytingar. Teikningar af hinni nýju deild eru fullunnar.
"Okkar aðstaða er líkari þeirri á Bretlandi en hinum Norðurlöndunum hvað þennan hóp varðar," segir Páll, en hann starfaði á geðgjörgæsludeild þar í landi. "Á Norðurlöndunum er til dæmis enn algengt að fólk sé ólað niður ef það er órólegt. Við gerum það hins vegar ekki og það gera Bretar ekki heldur."
Kallar á heildarendurskoðunFramtíðarsýn geðsviðsins er að eingöngu verði einmenningsherbergi á deildunum, en meirihluti þeirra er nú tveggja manna. Vissulega er reynt að raða fólki saman eins vel og hægt er, en það dugar þó ekki alltaf til.
"Deildin verður eins og einn nagli í naglasúpuna. Með henni munum við svo þurfa að endurskoða verkferla og heildarmynd því við erum alltaf að leita að leiðum til að hrista upp í kerfinu og ýta undir nýjar og betri vinnuaðferðir."
Geðsviðið sinnir langstærstum hluta sérfræðiþjónustu fyrir geðsjúka á landinu og allri sérhæfðri sjúkrahúsþjónustu. Niðurskurður á sviðinu síðustu fjögur ár hefur verið um 23 prósent, en að mati Páls hefur hann náðst án þess að skerða þjónustu við sjúklinga og þeirra öryggi sé áfram tryggt.
Kleppur í 100 ár – Órólegu deildirnar á Kleppi – 1951

Úr bók Óttars Guðmundssonar, Kleppur í 100 ár.
Lítið um ný lyfEngin ný tímamótageðlyf hafa komið fram á sjónarsviðið á síðustu tíu árum. Að sögn Páls hefur þekking á lyfjunum aukist undanfarið, þar á meðal hvaða vandamál geta fylgt þeim, meðal annars aukin meðvitund á ávanahættu róandi lyfja eins og hefur verið fjallað mikið um í fjölmiðlum undanfarin misseri.
Biðlistar mikið vandamálGeðsvið spítalans hafa þá sérstöðu að þar eru bæði biðlistar eftir innlögn og einnig eftir útskrift vegna þess að framhaldsúrræði skortir. Um 400 manns eru nú á biðlista eftir þjónustu á göngudeildum Landspítalans. "Við önnum ekki eftirspurn og það er rúmlega fjögurra mánaða bið eftir að komast í meðferð á göngudeild," segir Páll. "Það er mikið vandamál. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu ætti að sinna stærri hluta af einfaldari vandamálum, því að þetta gengur ekki svona."
Mikill meirihluti sjúklinga ánægðurSjúklingar á geðsviði eru almennt ánægðir með þjónustuna, samkvæmt skoðanakönnun sem gæðaráð sviðsins hefur gert undanfarin ár. Niðurstöðurnar í fyrra voru svipaðar og árið á undan, en um 84% sjúklinga telja þjónustuna hjálplega, viðeigandi og alúðlega. Áfram er þó kvartað undir skorti á einhverju að fást við og hluti sjúklinga upplifir sig óöruggan á legudeildum. Þá er starfsfólk geðsviðs ívið ánægðara með sitt umhverfi heldur en almennt gengur og gerist á LSH.