Tónlist

Vasadiskó: Arnar Eggert fyrsti gestur ársins

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Arnar spái í spilin fyrir nýtt tónlistarár í næsta þætti af Vasadiskó.
Arnar spái í spilin fyrir nýtt tónlistarár í næsta þætti af Vasadiskó.
Í byrjun hvers árs leita athafnamenn að ýmsu tagi til sérfræðinga í von um að fá einhvers konar hugmynd um hverju þeir geti átt von á á nýju ári. Þetta verður gert í næsta þætti af Vasadiskó en þangað mætir einn sérvitrasti tónlistargagnrýnandi landsins, Arnar Eggert Thoroddsen af Morgunblaðinu.

Nú þegar útvarpsþátturinn Vasadiskó hefur lokið við að gera upp síðasta tónlistarár verða mælarnir núllstilltir og byrjað upp á nýtt. Vasadiskó tekur upp sitt hefðbundna snið á sunnudag og leggur áfram áherslu á að kynna hlustendum fyrir splúnkunýrri tónlist. Þrátt fyrir að aðeins sé komið inn í fjórðu viku ársins hefur glás af áhugaverðri tónlist verið sleppt lausri nú þegar. Svo verður forvitnilegt að heyra spá Arnars Eggerts um nýtt tónlistarár auk þess að heyra skoðanir hans af því sem var að líða. Frá því í haust hefur Arnar einnig séð fyrir því að halda utan um tónleikaröð í aðalhúsnæði SÁÁ.

Arnar mætir einnig með vasadiskóið sitt (mp3 spilara) og setur á shuffle. Það verður forvitnilegt að fá smá innsýn í hvað sá geðþekki drengur hlustar á í einrúmi.

Vasadiskó er á dagskrá X-sins 977 á sunnudaginn kl. 15 og er í boði Gogoyoko. Fylgist með Vasadiskó á Fésbókinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.