Körfubolti

Haukur Helgi með sex stig í tapi gegn Real Madrid

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haukur Helgi Pálsson
Haukur Helgi Pálsson Mynd/Facebook-síða Manresa
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Assignia Manresa töpuðu 84-97 í hörkuleik gegn Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Liðsmenn Manresa stóðu í stórliðinu frá Madrid fram í fjórða leikhluta. Gestirnir frá Madrid leiddu með tveimur stigum eftir þrjá leikhluta en sigu fram úr í þeim fjórða.

Haukur Helgi skoraði sex stig, bæði úr þriggja stiga skotum, en landsliðsmaðurinn lék í rúmar tíu mínútur með botnliðinu í dag.

Manresa situr á botni deildarinnar án sigurs eftir átta umferðir. Gengi Real Madrid er öllu betra en liðið situr í toppsætinu með fullt hús stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×