Lífið

Hollywoodstjörnur í kringum Gullu

myndir/cover media og 365 miðlar
Arkitektinn Guðlaug Jónsdóttir, betur þekkt sem Gulla, prýðir forsíðu Lífsins, fylgiblað Fréttablaðsins. Gulla hefur búið í Los Angeles í rúmlega tuttugu ár þar sem hún sinnir ástríðu sinni sem er að hanna og skapa. Hún er staðráðin í að láta drauma sína rætast en þeir eru að byggja skýjakljúf, kirkju og risastórt listasafn.

Lífið gat ekki sleppt Gullu án þess að fá að forvitnaðist um Hollywoodstjörnurnar sem hún kemst ekki hjá því að hitta.



Leonardo DiCaprio ...hann býr beint á móti mér í New York.

Michael Douglas ...hitti hann á veitingastað fyrir mörgum árum.

Sylvester Stallone ...fór í boð heim til hans í Malibu.

Arnold Schwarzenegger ...hann fer á sömu hárgreiðslustofu og ég og ég hitti hann oft þar.

Mickey Rourke ...hann er vinur vina minna.

Paris Hilton ...hitti hana á opnun á stað sem ég hannaði.

Mila Kunis ...hitti hana í boði heima hjá vinkonu minni.

Cindy Crawford ...hannaði bar fyrir manninn hennar og bróður hans í New York.

Ashton Kutcher ...hannaði veitingastað fyrir Ashton fyrir mörgum árum sem hét Dolce.

Jack Nicholson ...hitti hann á veitingastað.

James Franco ...hannaði bar fyrir hann sem heitir Writer's Room.

Richard Gere ...mér var boðið á listsýningu sem hann var með.



Fleira fólk í Hollywood sem Gulla hefur rekist á í verslunum og á veitingahúsum eru

Oprah Winfrey, Jennifer Aniston, Gisele Bundchen, Brooke Shields, Colin Farrell, Matthew McConaughey, Elton John, Mick Jagger, Drew Barrymore, Gilles Marini,

Justin Timberlake og Jessica Biel

Óskarinn? Þegar Óskarinn var í febrúar fór ég nokkrum sinnum út að borða á Chateau Marmont hótelinu sem er í göngufæri frá því þar sem ég bý og þar voru allir leikararnir úr kvikmyndunum. Ég var meðal annars kynnt fyrir Kirsten Dunst, Sean Penn og Robert De Niro á Cannes Film festival í fyrra.

Brad Pitt og Angelina ... þau voru oft með bókað herbergi á „penthouse svítunni" sem ég hannaði á Roosevelt hótelinu. Þau mæta eftir klukkan fjögur á daginn og panta vodka og kavíar. Ætli það sé ekki þeirra „escape".

Hér má lesa viðtalið við Gullu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.