Lífið

Sporthúsið opnar í Reykjanesbæ

Ljósmyndir/ Hilmar Bragi Bárðarson/Víkurfréttir
Meðfylgjandi myndir voru teknar í glænýrri 2000 fermetra heilsu- og líkamsræktarstöð sem Sporthúsið opnaði á Ásbrú í Reykjanesbæ á laugardaginn var.

Hjónin Ari Elíasson og Eva Lind Ómarsdóttir eiga og reka stöðina ásamt eigendum Sporthússins í Kópavogi, þeim Þresti Jóni og Inga Páli Sigurðssonum.

Skoða myndirnar hér.

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar Árni Sigfússon ávarpaði gesti. Jóhann Rúnar Kristjánsson og Arnar Helgi Lárusson opnuðu stöðina formlega en þeir eru báðir bundnir við hjólastól. Þess má geta að aðgengi fyrir hjólastóla er mjög gott í húsinu.

Sporthusid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×