Dönsku dómararnir vissir | Þetta var aldrei víti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. janúar 2012 09:53 Per Olesen, annar dönsku dómaranna, í leiknum í gær. Mynd/Vilhelm
Dönsku dómararnir Lars Ejby Pedersen og Per Olesen voru í viðtali við norska fjölmiðla eftir leikinn gegn Íslandi í gær og stóðu fast á sinni meiningu - þetta var ekki víti. Á lokamínútu leiksins voru Norðmenn í sókn þegar þeir voru einu marki undir. Bjarte Myrhol tók skot að marki en vildi meina að á sér hafi verið brotið þegar að Vignir Svavarsson tók hann taki. En ekkert var dæmt, Björgvin Páll varði og Ísland tryggði sér tveggja marka sigur með marki á lokasekúndunni. Norskir leikmenn og þjálfarinn Robert Hedin mótmæltu kröftuglega eftir leikinn. „Það er vissulega skiljanlegt en breytir því ekki að þeir gengu of langt," sagði Per Olesen við fréttasíðu VG í gær. „Ég skil viðbrögðin þeirra enda mikilvægt augnablik, fjandinn hafi það. En þetta var of mikið - það verð ég að segja." „Við verðum að sjá leikinn aftur á myndbandi en mín innri tilfinning segir að þetta hafi verið rétt ákvörðun. Við gerum líka okkar mistök en við höfum heyrt í kollegum okkar í Danmörku sem segja að þetta var rétt." „Eins og ég sá þetta þá var Myrhol með bakið í markið. Þetta var aldrei víti," sagði Ejby Pedersen ákveðinn.
Mest lesið Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum Íslendingaliðin töpuðu bæði Ísland tapaði með minnsta mun Ekki haft tíma til að spá í EM Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Kristján lét að sér kveða þegar sigurgangan hélt áfram Súrt kvöld fyrir Íslendingaliðin í Meistaradeildinni „Langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert“ Viktor mætir Aroni: „Hann var átrúnaðargoðið mitt“ Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Tvö Íslendingalið áfram með fullt hús í Evrópudeildinni FH náði aðeins betri úrslitum á móti Gummersbach í þetta skiptið Uppgjör: Valur - Vardar 34-34 | Víti þegar leiktíminn var liðinn felldi Val Ásbjörn leikgreinir Gummersbach Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu Sjá meira