Tónlist

Fimmtíu tilnefndir til verðlauna

Norrænu tónlistarverðlaunin verða veitt í desember. Tíu listamenn frá Íslandi keppa til verðlaunanna. 



Fimmtíu listamenn frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi hafa verið tilnefndir til Norrænu tónlistarverðlaunanna í ár. Tíu listamenn eru tilnefndir í hverju landi.

Norræn dómnefnd mun velja tólf listamenn sem fara áfram í úrslit og loks mun alþjóðleg dómnefnd útnefna sigurvegarann. Þeir sem fá það ábyrgðafulla hlutverk eru Andres Lokko, blaðamaður frá Svíþjóð, Laurence Bell frá Domino Records í Bretlandi, Mike Pickering frá Columbia Records í Bretlandi, Jonathan Galkin frá DFA Records í Bandaríkunum og Jeanette Lee..

Lee á langan og athyglisverðan feril að baki og var meðal annars meðlimur pönksveitarinnar Public Image Ltd ásamt Johnny Rotten og fleirum. Hún er annar tveggja eigenda útgáfufyrirtækisins Rough Trade Records sem hefur meðal annars gefið út tónlist The Smiths, The Sundays, The Strokes, Arcade Fire og The Libertines.

Þær íslensku sveitir sem eru tilnefndar eru Ásgeir Trausti, Retro Stefson, Moses Hightower, Tilbury, Sigur Rós, Pétur Ben, Ghostigital, Jónas Sigurðsson, Ojba Rasta og Skúli Sverrison og Óskar Guðjónsson.Aðrir sem tilnefndir eru Efterklang frá Danmörku og El Perro Del Mar, First Aid Kit og Kent frá Svíþjóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×