Formúla 1

Vettel og Webber ræsa fremstir í Indlandi

Birgir Þór Harðarson skrifar
Hamilton, Vettel og Webber ræsa fremstir í kappakstrinum á morgun.
Hamilton, Vettel og Webber ræsa fremstir í kappakstrinum á morgun. nordicphotos/afp
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel ræsir indverska kappaksturinn af ráspól í Red Bull-bílnum sínum, við hliðina á liðsfélaga sínum Mark Webber. McLaren bílarnir voru mun nær Red Bull en væntingar stóðu til.

Vettel hefur verið fljótastur í öllum æfingum fyrir kappaksturinn og var fyrirfram talinn geta landað ráspól hér. Þetta er þriðji kappaksturinn í röð sem Red Bull-bílarnir ræsa í fyrsta og öðru sæti á ráslínunni.

Lewis Hamilton mun ræsa þriðji. Hann leit ekki út fyrir að vera neitt sérstaklega ánægður með þá rástöðu þegar hann stillti sér upp fyrir myndatöku ásamt Vettel og Webber. Hamilton þurfti að berjast við bílinn alla tímatökuna. Liðsfélagi hans, Jenson Button, var í svipuðum vandræðum en ræsir fjórði.

Martin Whitmarsh, liðstjóri McLaren-liðsins, sagði fyrir tímatökuna að þeir ættu í erfiðleikum með að ná nægum hita í dekkin til þess að hámarka virkni þeirra. Það er að öllum líkindum ástæðan fyrir erfiðleikum ökumannanna.

Fernando Alonso ræsir kappaksturinn í fimmta sæti. Liðsfélagi hans hjá Ferrari, Felipe Massa, ræsir sjötti. Alonso átti aldrei möguleika á ráspól, jafnvel þó þeir Massa hafi hjálpað hvor öðrum með hraða niður langa beina kaflan.

Kimi Raikkönen var heppinn að komast í gegnum síðasta niðurskurðinn og inn í þriðju og síðustu lotu tímatökunnar. Raikkönen hefur aldrei keppt í Indlandi áður og virtist enn vera að kynna sér brautina.

Sergio Perez á Sauber og Pastor Maldonado á Williams ræsa í áttunda og níunda sæti á undan Nico Rosberg á Mercedes. Maldonado og liðsfélagi hans Bruno Senna voru mjög fljótir í fyrstu lotu tímatökunnar. Maldonado lauk fyrstu lotunni fljótastur.

Force India-liðið er að öllum líkindum ekki ánægt með árangur sinn á heimavelli. Paul di Resta sagði við Sky Sports eftir aðra lotu tímatökunnar að bílinn væri erfiður við að eiga. Di Resta ræsir sextándi og liðsfélagi hans Nico Hulkenberg tólfti.

1Sebastian VettelRed Bull/Renault1'25.283-
2Mark WebberRed Bull/Renault1'25.3270.044
3Lewis HamiltonMcLaren/Mercedes1'25.5440.261
4Jenson ButtonMcLaren/Mercedes1'25.6590.376
5Fernando AlonsoFerrari1'25.7730.49
6Felipe MassaFerrari1'25.8570.574
7Kimi RäikkönenLotus/Renault1'26.2360.953
8Sergio PérezSauber/Ferrari1'26.3601.077
9Pastor MaldonadoWilliams/Renault1'26.7131.43
10Nico RosbergMercedes--
11Romain GrosjeanLotus/Renault1'26.1360.853
12Nico HülkenbergForce India/Mercedes1'26.2410.958
13Bruno SennaWilliams/Renault1'26.3311.048
14M.SchumacherMercedes1'26.5741.291
15Daniel RicciardoToro Rosso/Ferrari1'26.7771.494
16Paul Di RestaForce India/Mercedes1'26.9891.706
17Kamui KobayashiSauber/Ferrari1'27.2191.936
18Jean-Eric VergneToro Rosso/Ferrari1'27.5252.242
19Vitaly PetrovCaterham/Renault1'28.7563.473
20H.KovalainenCaterham/Renault1'29.5004.217
21Timo GlockMarussia/Cosworth1'29.6134.33
22Pedro de la RosaHRT/Cosworth1'30.5925.309
23N.KarthikeyanHRT/Cosworth1'30.5935.31
24Charles PicMarussia/Cosworth1'30.6625.379



Fleiri fréttir

Sjá meira


×