Golden Globe-verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á sunnudagskvöld. Kynnirinn Ricky Gervais hefur lofað því að hann muni ekki draga neitt undan í upphafsatriði afhendingarinnar.
Það hefur verið löng hefð fyrir því að kynnar á Golden Globe og Óskarnum renni stuttlega yfir árið með gamansömum hætti. Mörgum hefur verið hált á því svelli, David Letterman þótti til að mynda skjóta langt yfir markið þegar hann kynnti Óskarinn árið 1995 – hann gerði meðal annars grín að nöfnum Opruh Winfrey, Umu Thurman og Keanu Reeves – en miðað við upphafsatriði Ricky Gervais á Golden Globe í fyrra var spé Lettermans sem stormur í vatnsglasi.
Gervais fékk yfir sig alls kyns ákúrur eftir að hafa gert grín að Charlie Sheen, Hugh Hefner, Robert Downey Jr. og Tom Cruise, að ekki sé nú minnst á brandarann um Sex & City-leikkonurnar.
Og nú hefur írski veðmálarisinn Paddy Power birt lista yfir þau frægðarmenni sem eru líkleg til að lenda í kjafti og klóm Gervais. Þar efstur á blaði er Russell Brand og fyrrum spúsa hans, Katy Perry. Þau hjónakorn skildu eftir jólahaldið en samband þeirra var fallbyssufóður fyrir slúðurblöðin. Paddy metur möguleika þeirra fimm á móti einum.
Meðal annarra sem eiga það á hættu að fá á sig eiturpillur frá breska grínistanum eru Madonna, Tom Cruise og svo auðvitað fyrrum hjónakornin Ashton Kutcher og Demi Moore en Paddy Power telur líkurnar einn á móti tíu að þeirra nafn eigi eftir að bera á góma í uppistandi Gervais.
Þá eru Justin Bieber og Charlie Sheen langt frá því öruggir því Paddy metur líkur þeirra einn á móti fjórtán að nöfn þeirra verði nefnd í upphafsræðunni.
Paddy er síðan auðvitað ekki yfir verðlaunin sjálf hafinn, veðmálavefurinn telur líklegast að svart/hvíta kvikmyndin The Artist muni standa uppi sem sigurvegari og að aðalleikari myndarinnar, Jean Dujardin, verði útnefndur sem besti leikari í söng-og dramaflokki.
freyrgigja@frettabladid.is
Lífið