Tónlist

Síðasta lag Whitney Houston

Síðasta lagið sem Whitney Houston tók upp áður en hún lést hefur verið gefið út. Það er undir diskóáhrifum og heitir Celebrate. Þar syngur söngkonan sáluga með sigurvegaranum úr American Idol 2007, Jordin Sparks.

Lagið mun hljóma í væntanlegri kvikmynd, Sparkle, þar sem Houston leikur móður þriggja systra sem reyna fyrir sér í tónlistarbransanum og leikur Sparks eina þeirra. Um er að ræða endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1976.

Síðasta stóra kvikmyndahlutverk Houston var í The Preacher"s Wife sem kom út árið 1996.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.