Tónlist

Stærsta myndband Steinda hingað til

Fyrsti þáttur af Steindanum okkar 3 fór í loftið á Stöð 2 í gærkvöldi við mikinn fögnuð aðdáenda um allt land. Steindi og félagar enduðu þáttinn að venju á tónlistarmyndbandi og var það fyrsta af dýrari gerðinni. Lagið heitir Dansa það af mér og er hreint út sagt stórbrotið.

Stórstjörnurnar Helgi Björns, Ólafía Hrönn, Jörundur Ragnars, Unnur Ösp, Randver Þorláksson og fleiri fara á kostum í myndbandinu. Þar er sögð saga vægast sagt óheppins náunga sem á erfiða ævi að baki. „Ég hélt að léttmjólk ætti að vera kekkjótt. Slóst við róna á Nettó. En það splittar ekki diff!" segir hann og berst gegn ólukkunni með dansinn að vopni. Þegar geimverur ráðast á Jörðina er okkar maður síðan fremstur í flokki í baráttunni gegn þeim.

Þegar Ísland í dag heimsótti tökustaðinn í vor kom fram að gerð myndbandsins er stærsta verkefni sem Steindi og félagar hafa tekið að sér. Hægt er að sjá bak við tjöldin á tökustað hér á sjónvarpssíðu Vísis. Grafíkin í myndbandinu er unnin af hreyfimyndasérfræðingum hjá fyrirtækinu Miðstræti.

Dansa það af mér er unnið af tónlistarmönnunum í StopWaitGo í samvinnu við Steinda en það samstarf hefur áður fætt af sér ofursmellina Djamm í kvöld, Heima og Geðveikt fínn gaur.

Steindinn okkar 3 er á dagskrá á Stöð 2 á fimmtudagskvöldum klukkan 20.55.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.