Andlát Mærsk Möller er hvalreki fyrir ríkissjóð Danmerkur 17. apríl 2012 06:51
Andlát danska auðjöfursins Mærsk McKinney Möller er hvalreki á fjörur ríkissjóðs Danmerkur. Í dönskum fjölmiðlum kemur fram að erfðaskatturinn sem þrjár dætur Möller koma til með að greiða verði um 3 milljarðar danskra króna eða um 67 milljarðar króna. Þá er miðað við að persónuleg auðæfi Möller hafi numið um 20 milljörðum danskra króna en 15% erfðaskattur er greiddur í Danmörku. Raunar var auður Möller mun meiri eða vel yfir 100 milljarðar danskra króna en þá er tekið tillit til þeirra fjölskyldusjóða sem halda utan um eignarhaldið á Mærsk skipafélaginu. Dæturnar munu hinsvegar ekki greiða erfðaskatt af þessum sjóðum. Sjóðir þessir verða áfram í eigu fjölskyldunnar og er stjórnað af meðlimum hennar. Samanlagt fara sjóðirnir með 54% hlut í Mærsk skipafélaginu og er verðmæti þess hlutar nú 105 milljarðar danskra króna samkvæmt gengi hlutabréfanna í dönsku kauphöllinni.
Tengdar fréttir Mærsk McKinney Möller er látinn Danski auðjöfurinn Mærsk McKinney Möller eigandi eins af stærstu skipafélögum heimsins er látinn, 98 ára að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mærsk skipafélaginu. 16. apríl 2012 10:05 Mest lesið Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Ritúalið verður að Skjóli Viðskipti innlent Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Engin hópuppsögn í júlí Viðskipti innlent Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira
Mærsk McKinney Möller er látinn Danski auðjöfurinn Mærsk McKinney Möller eigandi eins af stærstu skipafélögum heimsins er látinn, 98 ára að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mærsk skipafélaginu. 16. apríl 2012 10:05