Lífið

Í allt öðrum líkama

Á beinu brautinni Charlie Sheen virðist aftur vera kominn á beinu brautina. 
NORDICPHOTOS/GETTY
Á beinu brautinni Charlie Sheen virðist aftur vera kominn á beinu brautina. NORDICPHOTOS/GETTY
Charlie Sheen líkir stórundarlegri hegðun sinni á síðasta ári við eitthvað sem gerðist í öðrum líkama en hans eigin.

Leikarinn var rekinn úr Two and a Half Men eftir að hann gagnrýndi höfund þáttanna, auk þess sem hann talaði opinskátt um fíkniefnanotkun og sambúð sína með tveimur kærustum. „Ég þekkti ekki þennan náunga. Þetta var skrítið ferðalag," sagði Sheen í viðtali í sjónvarpsþættinum Today.

Sheen er kominn á beinu brautina aftur og leikur næst í sjónvarpsþáttunum Anger Management. Hann segist ekki hafa viljað enda sjónvarpsferilinn með Two and a Half Men. „Ef þessi nýi þáttur verður svanasöngurinn þá verður þetta alla vega falleg reynsla. Hingað til hafa átta daga reynsla í þáttunum verið skemmtilegri en síðustu átta ár."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.