Lífið

Vinsæl í Þýskalandi

Þýska tískutímaritið Tush tók nýverið viðtal við meðlimi danssveitarinnar Steed Lord. Í vitalinu er nafn sveitarinnar meðal annars útskýrt fyrir blaðamanni Tush auk þess sem væntanleg plata Steed Lord er rædd. Brot úr viðtalinu er birt á vefsíðu blaðsins tushmagazine.com og einnig má hlusta á lagið 1 2 3 If You Want Me og horfa á myndbandið við lagið.

Svo virðist sem tónlist Steed Lord falli vel í kramið hjá Þjóðverjum því stutt er síðan blaðamaður þýska tónlistartímaritsins Honk Magazine tilnefndi lagið Bed Of Needles sem besta lag ársins 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.