Tónlist

Beastie Boys aftur á lista

Sala á plötum hljómsveitarinnar Beastie Boys hefur stóraukist eftir andlát Adams „MCA" Yauch. Sveitin á sjö breiðskífur á Billboard-listanum um þessar mundir.

Árið 1986 varð Licensed to Ill fyrsta rappplatan er náði toppsæti á Billboard-listanum. Platan situr nú í átjánda sæti listans og hefur selst í meira en 18.000 eintökum þessa vikuna. Plöturnar Solid Gold Hits, Paul's Boutique, Hot Sauce Committee Part Two, Ill Communication, Check Your Head og Beastie Boys Anthology hafa einnig selst vel en alls hefur orðið 1.235 prósenta aukning á sölu þeirra.

Adam Yauch lést þann 4. maí eftir áralanga baráttu við krabbamein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.