Lífið

Drive, Bridesmaids og Melancholia myndir ársins

Þrjár kvikmyndir voru efstar og jafnar í vali á bestu erlendu mynd síðasta árs af álitsgjöfum Fréttablaðsins. Þær eru Drive, Bridesmaids og Melancholia.

Alls voru tíu myndir nefndar til sögunnar í könnuninni af þeim sautján spekingum sem tóku þátt og því greinilegt að menn höfðu misjafnar skoðanir á bestu mynd ársins.

Hjartaknúsarinn Ryan Gosling leikur í Drive nafnlausan ökumann sem sinnir áhættuakstri á daginn fyrir Hollywood-myndir en ekur flóttabifreiðum fyrir glæpamenn á kvöldin. Nicolas Winding Refn fékk Cannes-verðlaunin fyrir að leikstýra myndinni auk þess sem aukaleikarinn Albert Brooks hefur verið tilnefndur til Golden Globe-verðlaunanna.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá eitt af spennuþrungnari atriðum myndarinnar.



Kirsten Dunst í Melancholia.
Bridesmaids fjallar um hina einhleypu Annie Walker sem tekur að sér hlutverk aðalbrúðarmeyjar í brúðkaupi æskuvinkonu sinnar með bráðfyndnum afleiðingum. Myndin hefur verið tilnefnd til tvennra Golden Globe-verðlauna, eða sem besta gaman/söngvamyndin og fyrir frammistöðu Kristen Wiig í hlutverki Walker.

Melancholia er nýjasta mynd Danans Lars Von Trier og leika þær Kirsten Dunst og Charlotte Gainsbourg aðalhlutverkin. Dunst vann Cannes-verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni, auk þess sem Melancholia var valin besta myndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum.

Aðrar myndir sem voru tilnefndar í könnuninni voru hin sænska Svinalängorna, Tree Of Life, The Ides of Marsh, Captain America, Warrior, teiknimyndin Arthur Christmas og Black Swan, sem kom reyndar út í Bandaríkjunum 2010 en var frumsýnd hérlendis í febrúar í fyrra. -fb

Bridesmaids var ein fyndnasta mynd ársins.
Álitsgjafar Fréttablaðsins

Dr. Gunni, Erlingur Grétar Einarsson, Freyr Gígja Gunnarsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Haukur Viðar Alfreðsson, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Hrönn Sveinsdóttir, Jón Gunnar Geirdal, Kjartan Guðmundsson, Kolbrún Björt Sigfúsdóttir, Marteinn Þórsson, Roald Eyvindsson, Sigríður Pétursdóttir, Sigurður Kjartan Kristinsson, Sindri Sindrason, Tómas Valgeirsson, Vera Sölvadóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×