Innlent

Seldu handavinnuna til að styrkja langveik börn

Fyrir góðan málstað Einbeittir nemendur í Sæmundarskóla seldu fallega gripi til að styrkja önnur börn sem glíma við erfið veikindi.Fréttablaðið/Stefán
Fyrir góðan málstað Einbeittir nemendur í Sæmundarskóla seldu fallega gripi til að styrkja önnur börn sem glíma við erfið veikindi.Fréttablaðið/Stefán
Krakkarnir í þremur yngstu bekkjardeildum Sæmundarskóla í Grafarholti söfnuðu hátt í þrjátíu þúsund krónum á basar til styrktar langveikum börnum.

Afrakstri baksturs og föndurklúbba var stillt fram í frístundaheimilinu Fjósinu. Annar og þriðji bekkur sá um söluna. Ömmur, afar og foreldrar voru áberandi í hópi viðskiptavina. Í fyrra gekk einnig vel. „Þá seldum við fyrir Ellu Dís og það gekk svo vel að forstöðukonan var farin að taka niður veggskraut og selja," segir Elín Jónsdóttir, starfsmaður Fjóssins. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×