Innlent

Strandsiglingar hefjist næsta ár

Sjóflutningar Innanríkisráðuneytið stefnir að því að bjóða út strandsiglingar í ár með það fyrir augum að siglingar hefjist í upphafi næsta árs. Fréttablaðið/Vilhelm
Sjóflutningar Innanríkisráðuneytið stefnir að því að bjóða út strandsiglingar í ár með það fyrir augum að siglingar hefjist í upphafi næsta árs. Fréttablaðið/Vilhelm
Tilraunastrandsiglingar gætu hafist í byrjun næsta árs ef áætlanir innanríkisráðuneytisins ganga eftir.

Siglingarnar verða boðnar út á þessu ári, en þær verða niðurgreiddar af ríkinu til nokkurra ára á meðan reksturinn væri að ná fótfestu.

Markmiðið er, að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu, að „tryggja hagkvæma sjóflutninga á vörum innanlands og stuðla að lægri flutningskostnaði, jákvæðri byggðaþróun með auknum tækifærum og samkeppnishæfni fyrirtækja á landsbyggðinni." - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×