Innlent

80% ferða um Þorlákshöfn

Herjólfur Ferjan hefur siglt 169 ferðir til og frá Eyjum síðan 1. nóvember í fyrra.fréttablaðið/stefán
Herjólfur Ferjan hefur siglt 169 ferðir til og frá Eyjum síðan 1. nóvember í fyrra.fréttablaðið/stefán
Herjólfur hefur farið 34 ferðir til Landeyjahafnar síðan í byrjun nóvember og 135 til Þorlákshafnar. Áttatíu prósent ferðanna hafa verið til Þorlákshafnar.

Samkvæmt upplýsingum frá Eimskip var siglt til Landeyjahafnar dagana 1. til 6. nóvember og aftur 14. til 18. desember. Alla aðra daga var farið til Þorlákshafnar. Veður eða bilanir ollu því að ekkert var siglt í rúma þrjá daga á þessu tímabili. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×