Erlent

Harka færist í bardagana í Sýrlandi á ný

Liðhlaupar í Homs Hópur sýrlenskra hermanna sem hefur gengið til liðs við uppreisnarmenn í borginni Homs.Nordicphotos/afp
Liðhlaupar í Homs Hópur sýrlenskra hermanna sem hefur gengið til liðs við uppreisnarmenn í borginni Homs.Nordicphotos/afp
Hörð átök hafa verið í Sýrlandi undanfarna tvo daga, einkum í borginni Homs þar sem tugir manna eru sagðir hafa látið lífið, þar á meðal börn.

Að minnsta kosti fimmtíu voru látnir þar í borg og stjórnarandstæðingar saka stjórnarherinn um fjöldamorð.

Fyrr í vikunni tilkynnti Arababandalagið að eftirlitsmenn á vegum þess verði kallaðir heim. Þeir staðfestu þó í yfirlýsingu í gær að ofbeldið í landinu hafi aukist mikið síðustu daga. Þeir hafi orðið vitni að því í borgunum Homs, Hama og Idlib.

Fréttamaður á vegum breska útvarpsins BBC segir að svo virðist sem stjórnin sé einnig að missa tökin á ástandinu í hverfum uppreisnarmanna í höfuðborginni Damaskus.

Myndband var birt á vefsíðu í gær þar sem sjá mátti fimm barnslík ásamt líkum fimm kvenna og eins karls í íbúðarhúsi í borginni Homs.

Fjöldi fólks hélt síðan út á götur víða í borgum og bæjum landsins í gær að loknum föstudagsbænum, sem eru mikilvægar samkomustundir í arabaheiminum og snúast iðulega upp í pólitískar umræður og kröfugerðir.

Í Egyptalandi ruddust hundruð mótmælenda inn í sýrlenska sendiráðið í Kaíró. Hurðir og gluggarúður voru brotnar, en á endanum mættu sýrlenskir hermenn og ráku fólkið út. Sýrlenski sendiherrann sagðist ætla að leggja fram formlega kvörtun hjá egypskum stjórnvöldum, að sögn arabíska fréttavefsins Al Jazeera.

Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna hafa meira en 5.000 manns látist í tengslum við aðgerðir stjórnarhersins gegn mótmælendum síðustu mánuðina.

Basher al Assad Sýrlandsforseti og stjórn hans segja á móti að um 2.000 hermenn hafi fallið í átökum við vopnaða hópa, sem þeir segja standa að baki uppreisninni.

Assad hefur reglulega lýst því yfir að sjálfsagt mál sé að verða við óskum um lýðræðisumbætur, en lítið hefur orðið úr efndum. Hins vegar stendur hann fast á því að beita her og lögreglu af fullri hörku gegn mótmælendum.

Hann féllst ekki á tillögur Arababandalagsins, sem fela meðal annars í sér að hann segi af sér, en það hefur verið ein helsta krafa uppreisnarmanna frá upphafi.

gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×