Innlent

Monte Carlo og Mónakó lokað

Lögregustjóri höfuðborgarsvæðisins hafnar því að endurnýja rekstrarleyfi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó sem báðir eru við Laugaveg í Reykjavík. Borgarráð lagðist gegn veitingu leyfanna og vísar lögreglustjórinn til þess að hann geti ekki gengið gegn neikvæðri niðurstöðu borgarinnar sem umsagnaraðila.

Staðirnir hafi lengi valdið ónæði. Leyfin hafi verið endurnýjuð til eins árs í febrúar 2010 gegn því að gerðar yrði úrbætur. Ekki væri að sjá að það tækifæri hafi verið nýtt. Staðirnir geta skotið synjununum til innanríkisráðuneytisins.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×