Lífið

Óskar þór ánægður með viðtökurnar

Óskar Þór Axelsson líkar vel við athyglina sem mynd hans Svartur á leik er að fá úti í heimi. Hér ásamt Stefáni Mána höfundi bókarinnar sem myndin er byggð á.
Óskar Þór Axelsson líkar vel við athyglina sem mynd hans Svartur á leik er að fá úti í heimi. Hér ásamt Stefáni Mána höfundi bókarinnar sem myndin er byggð á. Fréttablaðið/valli
„Það er óneitanlega gaman að myndin fái svona mikla athygli,“ segir Óskar Þór Axelsson leikstjóri myndarinnar Svartur á Leik. Bandaríski vefmiðillinn Hollywood Reporter telur íslensku myndina vera eina af sjö myndum sem vert er að fylgjast með á kvikmyndahátíðinni í Berlín.

Svartur á leik, eða Black"s Game eins og hún er titluð á ensku, hefur verið á miklu heimshornaflakki undanfarið þrátt fyrir að ennþá eigi eftir að frumsýna hana hér á landi. Myndin var sýnd á kvikmyndahátíð í Rotterdam á dögunum en bæði leikstjórinn og aðalleikarinn, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, fylgdu henni eftir þangað.

Myndin fékk góða dóma þar sem leikarinn Damon Younger fær sérstakt hrós frá gagnrýnanda vefsíðunnar Twitchfilm.com.

„Það er alltaf smá stressandi að frumsýna fyrir fullum sal af fólki en þetta gekk mjög vel og við fengum jákvæð viðbrögð,“ segir Óskar og bætir við að áhorfendur hafi verið að tengja vel við íslenska raunveruleikann í myndinni. „Af því sem ég hef fengið að heyra þykir myndin endurspegla íslenskt umhverfi og veruleika vel.“ Svartur á leik er byggð á bók Stefáns Mána og gerist í undirheimum Reykjavíkurborgar í lok tíunda áratugarins.

Óskar ætlar ekki að fylgja myndinni til Berlínar en hlakkar til að heyra viðtökurnar. „Ég kemst því miður ekki í þetta sinn en ég fylgist spenntur með. Það verður líka spennandi að frumsýna hér heima.“ Myndin verður frumsýnd hér á landi í mars. - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.