Tónlist

Mest afslappandi lag allra tíma

Hljómsveitin Marconi Union vann með hópi þerapista við að búa til afslappandi lag sem hægir á öndun og starfsemi heilans.

Lagið heitir Weightless og var spilað fyrir fjörutíu konur sem hluti af rannsókn á vegum snyrtifyrirtækisins Radox. Kom í ljós að það var meira afslappandi en lög með Enyu, Mozart og Coldplay. Samkvæmt The Daily Telegraph sögðu rúmlega 65% kvennanna að lagið hefði dregið úr streitu.

Lys Cooper, stofnandi bresku hljóðmeðferðarstofnunarinnar, sagði að lagið notaðist við mörg tónlistarmeðul sem hafi áður verið notuð með góðum árangri. „Með því að blanda þessum meðulum saman hefur Marconi Union tekist að búa til hið fullkomna afslöppunarlag. Samkvæmt rannsókninni er þetta mest afslappandi lag í heimi."

Tíu mest afslappandi lögin:

1. Marconi Union – Weightless

2. Airstream – Electra

3. DJ Shah – Mellomaniac

4. Enya – Watermark

5. Coldplay – Strawberry Swing

6. Barcelona – Please Don't Go

7. All Saints – Pure Shores

8. Adele - Someone Like You

9. Mozart - Canzonetta Sull'aria

10. Cafe Del Mar - We Can Fly






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.