Innlent

Meirihlutinn tjáði sig ekki

Borgarfulltrúar meirihluta Besta flokksins og Samfylkingar vildu ekki tjá sig um verkefnisfjármögnun Hverahlíðarvirkjunar á fundi borgarstjórnar í gær.

Málið var tekið á dagskrá að beiðni borgarfulltrúa Vinstri grænna. Umræðan varð hins vegar endaslepp af ofangreindum ástæðum.

Nú standa yfir óformlegar viðræður Orkuveitu Reykjavíkur við lífeyrissjóði um fjármögnun framkvæmda í Hverahlíð. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×