Tónlist

Spila í Japan í páskafríinu

Systurnar Jófríður og Ásthildur Ákadætur spila í Japan í páskafríinu sínu.
Systurnar Jófríður og Ásthildur Ákadætur spila í Japan í páskafríinu sínu. fréttablaðið/hag
„Þetta verður mjög spennandi,“ segir Jófríður Ákadóttir úr Pascal Pinon.

Hljómsveitin, sem er skipuð systrunum Jófríði og Ásthildi, fer í sína fyrstu tónleikaferð til Japans í lok mars. Það er Sumire Taya, eigandi verslunarinnar Violet and Claire í Japan, sem skipuleggur ferðalagið Hún hefur selt í búð sinni og dreift fyrstu plötu Pascal Pinon þar í landi.

„Við fórum til Kína síðasta haust. Hún Sumire er að dreifa plötunni í Japan og hún vildi fá okkur til að fljúga frá Kína til Japans en það var ekki hægt út af skólanum. Hún bauðst til að skipuleggja annan túr í páskafríinu okkar [frá MH] og þessar dagsetningar hentuðu okkur rosa vel,“ segir Jófríður. „Hún sagði að það væri mikil stemning fyrir þessari hljómsveit í Japan.“

Sumire Taya borgar sjálf flugið fyrir hljómsveitina til Japans. Í staðinn gefur hún út þriggja laga smáskífu í Japan með hljómsveitinni og vonast til að fjármagna ferðalagið þannig. Á skífunni verða tvö ný lög og eitt gamalt í nýjum búningi.

Pascal Pinon hlaut 1,2 milljóna styrk frá tónlistarsjóðnum Kraumi í fyrra og nýtti hann í Kínaförina og í tónleikaferð um Evrópu. Framundan hjá sveitinni á þessu ári er gerð nýrrar breiðskífu og verður Alex Somers, kærasti Jónsa í Sigur Rós, upptökustjóri.-fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.