Innlent

Vilja endurheimta æskulýðsfulltrúann

Blönduós Vinsæll æskulýðsfulltrúi er hættur vegna lágra launa en segir sig langa að snúa aftur og margir skora á bæjaryfirvðld að greiða fyrir því.
Blönduós Vinsæll æskulýðsfulltrúi er hættur vegna lágra launa en segir sig langa að snúa aftur og margir skora á bæjaryfirvðld að greiða fyrir því.
Áskorun með undirskriftum 48 íbúa Blönduósbæjar vegna starfsloka æskulýðsfulltrúa var tekin fyrir í bæjarráði á þriðjudag.

„Mér finnst þetta náttúrlega alveg frábært," segir Rannveig Rós Bjarnadóttir á Hólabaki, sem verið hefur æskulýðsfulltrúi frá árinu 2006 en sagði starfinu upp í fyrrahaust vegna bágra launakjara og lét af störfum um síðustu mánaðamót. Starfsvettvangur hennar var félagsmiðstöðin Skjólið.

„Það er eindregin ósk þeirra sem skrifa undir að bæjaryfirvöld sjái sóma sinn í því að gera allt hvað þau geta til að halda í Rannveigu. Viljum við með þessum undirskriftalista skora á stjórn Blönduósbæjar að taka þetta mál fyrir á stjórnar- og/eða nefndarfundum bæjarins og reyna að ná sáttum við Rannveigu í málinu," segir í áskoruninni.

Bæjarráðið sagði að því hefði verið ókunnugt um að æskulýðsfulltrúinn væri ósáttur við starfskjörin.

„Æskulýðsfulltrúi hefur unnið farsælt starf og leitt er ef starfslok hennar beri að með ósætti," bókaði bæjarráðið.

„Ég hef þá líklega unnið mína vinnu, ég vona það að minnsta kosti," segir Rannveig um undirskriftasöfnunina sem hún kveðst ekki hafa vitað af. Spurð hvort hún geti hugsað sér að snúa aftur ef kjörin verði betri svarar Rannveig einfaldlega: „Já, mig langar það."- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×