Erlent

Orðnir þreyttir á Fucking nafni

Fucking Íbúar smábæjarins Fucking í Austurríki íhuga að breyta nafni bæjarins.
Fucking Íbúar smábæjarins Fucking í Austurríki íhuga að breyta nafni bæjarins. Nordicphotos/AFP
Íbúar smábæjarins Fucking í Austurríki eru orðnir þreyttir á gríni á sinn kostnað og íhuga að breyta nafni bæjarins.

Fucking-búar, sem eru 104 talsins, munu ganga að kjörborðinu í vikunni þar sem ákveðið verður hvort rithætti nafnsins verður breytt. Meðal annars er rætt um að skipta út -ck- í nafninu fyrir g.

Bærinn hefur lengi verið skotspónn spaugara sem hafa lagt leið sína að bænum til að taka mynd af bæjarskiltinu. Fucking-skiltinu hefur verið stolið minnst þrettán sinnum.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×