Erlent

Flugskeyti sögð gerviflugskeyti

Sýndarveruleiki Sum flugskeytanna reyndust eftirlíkingar.nordicphotos/AFP
Sýndarveruleiki Sum flugskeytanna reyndust eftirlíkingar.nordicphotos/AFP
Sex flugskeyti, sem sýnd voru með viðhöfn á hersýningu í Norður-Kóreu nýverið, voru ekki alvöru flugskeyti heldur eftirlíkingar. Og þær lélegar.

Þetta fullyrða þýskir sérfræðingar, sem hafa skoðað grannt myndir af flugskeytunum.

Þetta grefur verulega undan stórkarlalegum yfirlýsingum Norður-Kóreumanna um hernaðarmátt ríkisins. Nú síðast á miðvikudaginn fullyrti Ri Yong Ho, aðstoðarmarskálkur í Norður-Kóreu, að her landsins gæti sigrað Bandaríkin „í einu höggi".- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×