Lífið

Bomban í myndinni hans Balta

Baltasar Kormákur leikstýrir einni af fallegustu konum í heimi, leikkonunni Paulu Patton, í næstu mynd sinni 2 Guns.
Baltasar Kormákur leikstýrir einni af fallegustu konum í heimi, leikkonunni Paulu Patton, í næstu mynd sinni 2 Guns. Nordicphotos/getty
Leikkonan Paula Patton leikur undir stjórn kvikmyndaleikstjórans Baltasars Kormáks í myndinni 2 Guns ásamt Mark Wahlberg og Denzel Washington. Patton er rísandi stjarna í Hollywood og þykir með fegurstu konum í heimi.

Þrátt fyrir að vera ekki öllum kunn er Paula Patton ekki ný af nálinni í Hollywood. Hún verður 37 ára í lok árs en hún sást fyrst á hvíta tjaldinu með Will Smith og Evu Mendes í myndinni Hitch. Það var hins vegar í myndinni Déjá Vú sem hún komst á kortið er hún lék annað aðalhlutverkana á móti sjálfum Denzel Washington en þau tvö endurnýja kynni sín í mynd Baltasars.

Patton lék kennarann Blu Rain í myndinni Precious og þurfti að afþakka hlutverk í sjónvarpsseríunum Law and Order: Special Victims Unit þegar henni bauðst að leika með Tom Cruise í Mission: Impossible – Ghost Protocol sem frumsýnd var á síðasta ári. Síðan þá hefur Patton verið fastur gestur á rauða dreglinum.

Patton þykir með þeim fegurri í Hollywood enda komst hún í áttunda sæti hjá tímaritinu People yfir fallegustu konur heims. Leikkonan er gift R&B tónlistarmanninum Robin Thicke og saman eiga þau tveggja ára son. Patton lék einmitt aðalhlutverkið í myndbandi eiginmannsins við lagið Lost Without You. Hjónin komust í fréttirnar í byrjun árs þegar Thicke var handtekinn fyrir að vera með kannabisefni í fórum sínum, en var látinn laus eftir að hafa greitt sekt.

Patton er að færa sig ofar metorðastiga Hollywoodborgar og nú er spurning hvernig leikkonan á eftir að standa sig undir stjórn Baltasars í 2 Guns en myndin fer í tökur á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.