Lífið

Rúnar Ingi í Shots Magazine

Rúnar Ingi Einarsson Viðtal við Rúnar Inga birtist í tímaritinu Shots Magazine. Hann gerði auglýsingu með þríþrautarkonunni Söru Reinertsen.
Rúnar Ingi Einarsson Viðtal við Rúnar Inga birtist í tímaritinu Shots Magazine. Hann gerði auglýsingu með þríþrautarkonunni Söru Reinertsen.
„Þetta er algjör snilld. Það hefur lengi verið draumur minn að komast þarna inn,“ segir auglýsingaleikstjórinn Rúnar Ingi Einarsson.

Viðtal við Rúnar Inga birtist fyrir skömmu í Shots Magazine, sem er eitt helsta tímarit auglýsingageirans. Tilefnið var auglýsing sem hann gerði fyrir fyrirtækin Nike og Össur ásamt þríþrautarkonunni Söru Reinertsen, sem er með gervifót frá Össuri.

Aðspurður segir Rúnar Ingi að auglýsingin hafi fengið góð viðbrögð. „Hún hefur hjálpað mikið við að koma mér áfram og eins líka að þeir hjá Shots Magazine skuli pikka þetta upp. Það gefur þessu ákveðinn gæðastimpil.“

Rúnar Ingi, sem er 26 ára, hefur starfað sem leikstjóri hjá Pegasus í eitt ár en hefur verið í auglýsingabransanum í um átta ár. Hér heima hefur hann leikstýrt auglýsingum fyrir Ikea, 66°norður og VR, auk þess sem hann gerði tónlistarmyndband við lag Hjaltalín, Feels Like Sugar. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.