Innlent

Foreldrar komi að ráðningum

Tekið verður upp samráð við foreldra þegar skólastjórar eru ráðnir, nái tillaga sjálfstæðismanna í borgarstjórn fram að ganga. Hún var lögð fram á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs en afgreiðslu frestað.

Lagt er til að stjórnir foreldrafélaga fái að kynna sér gögn um umsækjendur og hitta þá. Verði því við komið geti stjórnir efnt til funda fyrir foreldra og í framhaldinu skilað til skóla- og frístundaráðs áliti á því hver hæfasti umsækjandinn sé. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×