Innlent

Þóra mælist með mest fylgi

Þóra Arnórsdóttir er með rúmlega átta prósentustiga forskot á Ólaf Ragnar Grímsson forseta í nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Könnunin var gerð dagana 8. maí til 18. maí.

Í könnuninni sem gerð var meðal meðlima nethóps Félagsvísindastofnunar mælist Þóra með 46,2 prósent fylgi og Ólafur Ragnar með 37,8 prósent. Tæp níu prósent segjast ætla að kjósa Ara Trausta Guðmundsson, 3,8 prósent Andreu J. Ólafsdóttur og Herdísi Þorgeirsdóttur ætla 2,6 prósent að kjósa. Aðrir frambjóðendur mælast með innan við eins prósents fylgi.

Alls svöruðu 1,075 manns og var svarhlutfallið 57 prósent.- bþh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×