Boðar skoðun á innra skipulagi embættisins 25. maí 2012 05:30 Þeir Jón Óttar Ólafsson (til vinstri) og Guðmundur Haukur Gunnarsson (lengst til hægri) voru Hólmsteini Gauta Sigurðssyni saksóknara til aðstoðar þegar svokallað Svartháfsmál var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í janúar. Fréttablaðið/Anton
Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verða endurskoðaðar í kjölfar þess að embættið kærði tvo fyrrum starfsmenn til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnarskyldu. Málið hefur ekki áhrif á dómsmál þrotabús Milestone, segir skiptastjóri. Verklagsreglur hjá embætti sérstaks saksóknara verða teknar til endurskoðunar eftir að embættið kærði tvo fyrrum starfsmenn sína til ríkissaksóknara. Guðmundur Haukur Gunnarsson og Jón Óttar Ólafsson hafa verið kærðir til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnarskyldu í starfi en þeim er gefið að sök að hafa selt upplýsingar, sem þeir urðu sér úti um í störfum fyrir embættið, til þrotabús Milestone. Mennirnir, sem eru fyrrverandi lögreglumenn, höfðu unnið að rannsóknum á málum tengdum Milestone og Sjóvá hjá embættinu. Þeir létu formlega af störfum hjá því um áramót en unnu um tíma eftir það sem verktakar fyrir embættið. Í yfirlýsingu sem Grímur Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Milestone, sendi frá sér í gær kemur fram að félagið P3 sf., í eigu tvímenninganna, hafi boðið fram þjónustu sína við þrotabúið við rannsókn á gögnum tengdum Milestone. Þrotabúið hafi talið mikils virði að fá reynda rannsóknarlögreglumenn með þekkingu á málefnum Milestone til að hjálpa til við þessa umfangsmiklu vinnu. Þá hafi tvímenningarnir fullyrt að þetta væri gert með fullri vitund þáverandi yfirmanna þeirra hjá embætti sérstaks saksóknara, sem síðar kom á daginn að var rangt. Í kjölfarið muni skiptastjóri kanna réttarstöðu búsins vegna málsins. Loks kemur fram í yfirlýsingunni að skiptastjóri telji að öll þau gögn sem afhent voru þrotabúinu á grundvelli rannsóknar tvímenninganna fyrir sig hafi verið í eigu þrotabúsins eða þá þess eðlis að þrotabúinu hafi verið heimilt að fá aðgang að þeim. Þrotabúið hefur höfðað nokkurn fjölda mála til að reyna að fá rift ákveðnum viðskiptum Milestone upp á milljarða króna. Spurður hvort aðkoma tvímenninganna að málum þrotabúsins hafi áhrif á þau mál segir Grímur svo ekki vera. Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá því í kvöldfréttum á miðvikudag að verjendur þeirra sem tengjast rannsóknum, sem tvímenningarnir tóku þátt í hjá embætti sérstaks saksóknara, íhugi að krefjast þess að þeim verði hætt vegna aðkomu þeirra. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að það muni koma betur í ljós við dómsmeðferð máls tvímenninganna hvort aðkoma þeirra að rannsóknum embættis sérstaks saksóknara muni hafi áhrif á mál embættisins tengd Milestone. Þá segir Ólafur að verkferlar og verklagsreglur hjá embættinu verði teknar til endurskoðunar. „Mál eins og þetta kallar á skoðun á innra skipulagi embættisins og ég á von á því að við munum fara yfir ákveðna þætti,“ segir Ólafur. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Erlent Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna Erlent „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Innlent Betlari til leiðinda í miðbænum Innlent Lík Jay Slater fundið Erlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Ætlar að áfrýja til Landsréttar Innlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Ótrúleg mynd virðist sýna kúlu fljúga fram hjá Trump Erlent Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Innlent Fleiri fréttir „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Ætlar að áfrýja til Landsréttar Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Betlari til leiðinda í miðbænum Síbrotamaður dæmdur og Siggi stormur svarar fyrir spána „Hættan fyrir vinnandi fólk er raunveruleg“ Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Bókanir undir væntingum en ekki hægt að tala um hrun Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax Íslendingur fannst látinn á Spáni Aðventistar svara sýslumanni fullum hálsi Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld „Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Kourani, banatilræði við Trump og efnhagsmálin Ákærður vegna andlátsins í Naustahverfi Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Tekjur mestar í Vestmannaeyjum og minnstar í Tjörneshreppi Of lítið fjármagn til viðhalds hafi kostað mannslíf Handtekinn grunaður um rán og frelsissviptingu Ungir menn sem veðja stjórnlaust hafi varann á Stúlkan er fundin Morðtilræði gegn Trump, úrslitaleikur EM og fjárhættuspil „Það er allt búið að vera á floti hérna“ Hjólreiðamaður með opið beinbrot í Þórsmörk Utanríkisráðherra segir árásina hörmulega Miklar tafir vegna slyss norðan Hvalfjarðargangna Sjá meira