Innlent

Dregið úr dýravernd í frumvarpi

Grasbítar Landbúnaðarráðuneytið vill ekki hafa ákvæði í dýraverndarlögum þar sem grasbítum er tryggð sumarbeit.
Fréttablaðið/Stefán
Grasbítar Landbúnaðarráðuneytið vill ekki hafa ákvæði í dýraverndarlögum þar sem grasbítum er tryggð sumarbeit. Fréttablaðið/Stefán
Dýralæknafélag Íslands mótmælir harðlega þeim breytingum sem gerðar voru í meðförum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins á tillögum nefndar til lagafrumvarps um dýravelferð.

Meðal þeirra ákvæða sem ráðuneytið lét taka út voru bann við geldingum grísa án deyfingar, bann við að drekkja dýrum eða aflífa þau með útblæstri véla og að tryggja grasbítum sumarbeit.

Dýralæknafélagið leggst eindregið gegn þessum breytingum og vekur athygli á að einnig hafi verið tekin út heimild Matvælastofnunar til að skerða eða fella niður ríkisstyrki hjá þeim sem brjóta gegn dýrum.

Aðalfundur félagins var haldinn þann 10. júní og var þessi ályktun þar samþykkt einhljóða. Þar var áréttað mikilvægi þess að löggjafinn virði fyrstu grein frumvarps um dýravelferð, sem lýtur að velferð dýra og að markmið laganna sé að dýrin geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast sé unnt í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur.

„Ofangreindar breytingar sem gerðar hafa verið á tillögum nefndarinnar eru engan veginn í anda 1. greinar frumvarpsins; eru reyndar í andstöðu við hana," segir í ályktun félagsins. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×