Erlent

Rigningin stöðvaði átökin tímabundið

athvarf í klaustri Margir hafa orðið heimilislausir vegna átakanna og þessi fjölskylda er þeirra á meðal. Hún dvelst nú í klaustri sem hefur tímabundið verið breytt í athvarf fyrir heimilislausa. nordicphotos/afp
athvarf í klaustri Margir hafa orðið heimilislausir vegna átakanna og þessi fjölskylda er þeirra á meðal. Hún dvelst nú í klaustri sem hefur tímabundið verið breytt í athvarf fyrir heimilislausa. nordicphotos/afp
Fréttaskýring: Hvernig er ástandið í Búrma?

Sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í málefnum Búrma, einnig þekkt sem Mjanmar, kom til landsins í gær til að kynna sér ástandið í Rakhine-héraði, þar sem blóðug átök trúarhópa hafa geisað síðustu daga. Sagt er að 21 hafi látið lífið í átökum þar síðan á föstudag.

Rólegra var um að litast í héraðinu í gær en dagana þar á undan. Það helgaðist af mikilli rigningu, sem stöðvaði átökin að minnsta kosti tímabundið. Frá því á föstudag hefur 21 látið lífið í átökum og yfir 1.500 heimili hafa verið brennd. Mikill fjöldi fólks er því heimilislaus í héraðinu.

Vegna ótta við áframhaldandi átök hefur rútu- og ferjuflutningum verið hætt frá höfuðborginni Yangon til héraðsins. Þetta hefur valdið því að mat og aðra hluti er farið að skorta í héraðinu. Búðir, bankar, skólar og markaðir eru að mestu leyti lokaðir.

Átökin eru á milli búddatrúarmanna og svokallaðra Rohingya-múslima í héraðinu og eiga upptök sín að rekja til þess að ungri búddatrúarkonu var nauðgað og hún myrt í maí. Þrír múslimar eru sagðir hafa framið verknaðinn.

Múslimar í Rakhine-héraði eru ekki með ríkisborgararétt í Búrma, þar sem stjórnvöld telja þá ólöglega innflytjendur frá Bangladess. Stjórnvöld í Bangladess eru ekki sammála því. Þúsundir múslimanna hafa þó reynt að flýja yfir til Bangladess en öllum hefur verið snúið við. Stjórnvöld þar segjast ekki hafa burði til að taka við flóttafólki, en mannréttindasamtök hafa gagnrýnt mjög að landamærunum skuli hafa verið lokað fyrir þessu fólki. Með því sé verið að leggja líf fólksins í mikla hættu.

Thein Sein forsætisráðherra landsins lýsti yfir neyðarástandi í héraðinu á sunnudag. Hann sagði jafnframt að ofbeldið þar geti ógnað þeim lýðræðisumbótum sem unnið sé að í landinu, eftir hálfrar aldar valdasetu hersins. Þrátt fyrir að herinn stjórni ekki að nafninu til hefur hann enn mikil ítök í landinu og hefur Sein verið gagnrýndur fyrir að lýsa yfir neyðarástandi þar sem það veiti hernum völdin í héraðinu. thorunn@frettabladid.is


Tengdar fréttir

Tekur loks við Nóbelsverðlaununum

Stjórnarandstöðuleiðtoginn Aung San Suu Kyi kemur í dag til Genfar í Sviss, í fyrstu ferð sinni til Evrópu í 24 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×