Erlent

Dingóar námu Azariu á brott

Lindy Chamberlain-Creighton
Lindy Chamberlain-Creighton
Eftir 32ja ára þrautagöngu var léttir hinnar áströlsku Lindy Chamberlain-Creighton mikill í gær þegar hún var endanlega hreinsuð af ásökunum um að hafa valdið dauða dóttur sinnar árið 1980.

Azaria Chamberlain var níu mánaða gömul þegar hún hvarf úr tjaldi fjölskyldunnar, en foreldrar hennar héldu því fram að dingó-villihundur hefði numið barnið á brott. Málið veltist um dómskerfið á næstu árum og var Lindy meðal annars dæmd sek um morð árið 1982 og sat í fangelsi í rúm þrjú ár áður en hún var hreinsuð af ásökunum.

Síðan hefur málið verið óuppgert, en nú hefur dánarvottorði stúlkunnar verið breytt og sakleysi foreldranna staðfest. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×