Innlent

Minna þarf að pissa um nætur

Unnið úr hvönn SagaPro er unnið úr ætihvönn.nordicphotos/getty
Unnið úr hvönn SagaPro er unnið úr ætihvönn.nordicphotos/getty
Staðfest er að náttúruvaran SagaPro sem unnin er úr íslenskri ætihvönn virki vel við næturþvaglátum. Klínísk rannsókn sem gerð var á vörunni og birt í virtu læknatímariti sýnir fram á að varan eykur blöðrurýmd og dregur úr tíðni næturþvagláta. SagaMedica framleiðir vöruna.

Rannsókn á SagaPro var gerð á 69 karlmönnum með tiltekin einkenni í þvagfærakerfi. Einhverjir fengu lyfleysu og aðrir SagaPro. Rannsóknin sýndi fram á að karlar með góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli geta notað vöruna til góðs. SagaPro inniheldur einnig blöðruslakandi efni.

Varan er nú þegar seld í yfir 200 verslunum vestanhafs og stefnt er að markaðssetningu í Evrópu.- bþh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×