„Þetta framhald er stór áfangi fyrir tónvísindasmiðjur Bjarkar en við höfum leitað eftir slíku," útskýrir Curver Thoroddsen, sem stýrir Biophiliu-kennsluverkefninu fyrir hönd Bjarkar Guðmundsdóttur. Með orðunum á hann við smiðju sem hefst á morgun í New York Public Library en verkefnið er framhald af smiðjum sem haldnar voru í tengslum við Biophiliu-tónleika Bjarkar í borginni í ársbyrjun.
„Aðstandendur bókasafnsins sýndu verkefninu mikinn áhuga og vildu strax fá það til sín," segir hann en þeir fengu að koma í heimsókn og heilluðust upp úr skónum.
Smiðjan verður haldin einu sinni í viku, tvo og hálfan tíma í senn, og eitt lag af Biophiliu-plötunni verður tekið fyrir í hvert skipti. Tónlistar- og vísindahlið laganna verða skoðaðar og iPad-spjaldtölvur notaðar við kennsluna en þátttakendur semja á tíu mismunandi forrit sem sum hver eru líkt og hljóðfæri. Þau fá að því loknu að eiga upptökur af öllu. Aðalatriðið er að hvetja þau til að skapa," segir hann. Uppbókað er í smiðjuna sem er ókeypis og stendur til áramóta í tveimur útibúum safnsins.


Á haustmánuðum hefst þriggja ára ferðalag þessara Biophiliu-smiðja um grunnskóla Reykjavíkur í samstarfi við Reykjavíkurborg og Háskóla Íslands þar sem tónlistar- og náttúrufræðikennarar munu hvetja íslensk ungmenni til tilrauna og sköpunar.
hallfridur@frettabladid.is