Innlent

18.000 íbúinn fær gjafir

Íbúar á Akureyri urðu 18 þúsund talsins 29. maí, þegar Elísabetu Þórunni Jónsdóttur og Sveini Arnarsyni fæddist sonur. Af því tilefni ætla Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar, að afhenda drengnum og foreldrum hans gjafir í dag.

Akureyringum hefur fjölgað nokkuð undanfarin ár og urðu þeir sautján þúsund talsins árið 2007 og rufu sextán þúsund manna múrinn árið 2003.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×