Tónlist

Íslendingar feimnir við kántríið

Sigurgeir Sigmundsson spilar á hverju ári með norsku kántríhljómsveitinni Big River Band.
Sigurgeir Sigmundsson spilar á hverju ári með norsku kántríhljómsveitinni Big River Band. fréttablaðið/gva
"Hún er skemmtileg kántríhefðin hjá Norðmönnum, þeir eru svo mikið kántrí," segir gítarleikarinn Sigurgeir Sigmundsson.

Hann spilar með norsku kántrísveitinni Big River Band einu sinni á ári á hátíðinni Lofoten Country Music Festival. Sveitin hefur gefið út eina plötu og þrisvar komist á norska kántrívinsældarlistann. "Íslendingar eru líka kántrísinnaðir en þeir eru feimnari við að sýna það. Þeir eru feimnari við að setja upp hattinn og fara í skóna og köflóttu skyrtuna."

Sigurgeir hefur í 35 ár spilað rokk með sveitum á borð við Start, Gildruna og Drýsil en undanfarin ár hefur hann fikrað sig út í kántríið með Klaufum og Björgvini Halldórssyni. Þar spilar hann á fetilgítara og kjöltustálgítara og er einmitt stofnandi Rokk- og stálgítarskólans.

Aðspurður segir Sigurgeir sérstakt að spila á fetilgítarinn. "Þetta er eiginlega eins og að spila á gítarorgel," útskýrir hann. Á gítarnum eru tveir tíu strengja hálsar, átta fótpedalar og sex járn til að stýra tónunum. Sigurgeir snertir aldrei strengina með puttunum heldur notar járn til að spila.

Hann leikur með Gildrunni á Eskifirði á laugardaginn. Sama dag geta tónlistarunnendur fylgst með kynningu á hljóðfærum hans, þar á meðal kjöltustálgítarnum sem hann grípur í með Gildrunni. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.